Logi Tómasson í FH | Ívar Örn til HK | Fjölnir fá danskan framherja Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. júní 2020 21:28 Logi Tómasson varð bikarmeistari með Víkingum síðasta sumar eftir 1-0 sigur á FH. Hann mun nú spila með FH út þetta tímabil hið minnsta. vísir/vilhelm
Logi Tómasson, vinstri bakvörður, er genginn í raðir FH en frá þessu greindi Davíð Þór Viðarsson í Pepsi Max Stúkunni nú rétt í þessu. Logi kemur á láni frá Víkingum út tímabilið og munu Hafnfirðingar hafa möguleika á því að kaupa Loga þegar tímabilinu lýkur. Hinn 19 ára gamli Logi hefur alls leikið 38 leiki í meistaraflokki fyrir Víking og Þrótt. Hann heldur nú í Hafnafjörðinn og mun leika með FH út tímabilið allavega. Alls kom Logi að 16 leikjum Víkinga í Pepsi Max deildinni á síðustu leiktíð, þá hafði hann komið við sögu í tveimur af þremur leikjum í deildinni til þessa. Víkingar unnu stórsigur á FH í síðustu umferð. Lokatölur 4-1 og Víkingar allt í einu komnir í toppbaráttu deildarinnar. Var þetta fyrsti tapleikur FH en liðið hafði lagt HK og ÍA í fyrstu tveimur umferðum mótsins. Ívar Örn Jónsson er annar vinstri bakvörður sem færir sig um set samkvæmt heimildum manna í Pepsi Max Stúkunni. Ívar Örn hefur verið fastur á varamannabekk Vals undanfarin misseri en þar áður lék hann með Víkingum og HK. Hann heldur nú heim í Kópavog og mun leika með HK. Þá eru nýliðar Fjölnis að styrkja sig en þeir eru að fá framherja frá danska félaginu Viborg. Sá heitir Christian Sivebæk og er 32 ára gamall. Hefur hann skorað sjö mörk ásamt því að leggja upp önnur sex á þessari leiktíð. Fjölnir gerði jafntefli við Víking í fyrstu umferð en hefur síðan þá tapað gegn bæði Stjörnunni og Breiðabliki.
Fótbolti Pepsi Max-deild karla Íslenski boltinn Víkingur Reykjavík FH HK Fjölnir Valur Mest lesið Hákon hjólaði í Greenwood: „Stjórnlaust, árásargjarnt og ofbeldisfullt“ Fótbolti Segir óafsakanlegt að Kristófer spili ekki með landsliðinu Körfubolti Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Enski boltinn Ekið yfir unga stúlku á golfbíl á PGA-móti Golf Skoðaði drykk Alberts eftir umræðu um vítin Enski boltinn Benítez kippti Sverri út af eftir óheppilegt sjálfsmark Fótbolti Bikarinn brotnaði við lyftingu Handbolti Chiesa ekki í standi til að spila í umspilinu Fótbolti Griezmann að flytja til Flórída Fótbolti Haaland fær frí frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Þriðji ættliðurinn sem spilar með FH 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Sjá meira