Rekstur líklegri til að ganga upp ef stofnendur eru 35 ára eða eldri Rakel Sveinsdóttir skrifar 29. júlí 2020 10:00 Fólk sem er 35 ára og eldra virðist líklegra til að njóta þess betur að stofna sitt eigið fyrirtæki í samanburði við fólk sem stofnar fyrirtæki fljótlega eftir nám. Vísir/Getty
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var í Bandaríkjunum árið 2018 er líklegra að rekstur fyrirtækis gangi upp til frambúðar ef stofnendur eru 35 ára eða eldri þegar rekstur hefst. Í umfjöllun Wall Street Journal segir að líkurnar á því að fyrirtækjareksturinn gangi upp til frambúðar aukist um 50% í samanburði við fyrirtækjarekstur þar sem stofnendur eru yngri en 35 ára. Rannsóknin var gerð á vegum Kauffman Foundation og mældist meðalaldur þeirra sem stofnuðu sitt eigið fyrirtæki vera 39 ára. Eitt af því sem vekur athygli í niðurstöðum er að fólk sem stofnar sitt eigið fyrirtæki á miðjum starfsferli sínum virðist fimm sinnum líklegri til að njóta þess að reka sitt eigið fyrirtæki í samanburði við fólk sem stofnar sitt eigið fyrirtæki fljótlega eftir nám. Tvær ástæður eru tilgreindar sérstaklega þessu til skýringar. Í fyrsta lagi sú staðreynd að það tekur fólk alla jafna nokkurn tíma að læra að þekkja sína eigin styrkleika og öðlast reynslu. Í öðru lagi er fólk sem þegar hefur starfað fyrir aðra í nokkurn tíma, oftast fjárhagslega betur sett í samanburði við ungt fólk í fyrirtækjarekstri. Samkvæmt tölum sem Hagstofan birti þann 8.júlí síðastliðinn höfðu fyrirtæki sem hættu starfsemi á tímabilinu 2014-2016 í 68% tilfella starfað í fimm ár eða skemur.
Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Sjá meira