Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Eiður Þór Árnason skrifar 3. september 2026 18:51 Það væsir ekki um Árna Pál en peningar og fjármál hafa orðið honum að reglulegu yrkisefni. Vísir/Lýður Valberg Félag Árna Páls Árnasonar, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, hagnaðist um 58 milljónir króna árið 2025. Það hafði 125,4 milljónir króna í tekjur á tímabilinu og komu þær allar til vegna tónlistarflutnings. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins Kópbois ehf.
Þar segir að launagreiðslur félagsins hafi numið 13,4 milljónum króna árið 2025 og fjöldi ársverka hafi verið eitt. Einnig var greiddur út 66,5 milljóna króna arður í fyrra en enginn arður var tekinn út árið á undan. Árni Páll fer með allt eignarhald í félaginu. Hagnaður félagsins dregst saman milli ára en hann nam 66,2 milljónum króna árið 2024. Jafngildir áðurnefnd arðgreiðsla því rétt rúmlega öllum hagnaði ársins á undan. Rekstrartekjur drógust einnig saman og fóru úr 145,7 milljónum árið 2024 í áðurnefndar 125,4 milljónir ári seinna. Festi kaup á bifreið og veitti 43,5 milljóna króna lán Bifreið bættist við efnahagsreikning félagsins í fyrra og er hún verðmetin á tæpar 10 milljónir króna í ársreikningi. Annars staðar er gerð grein fyrir kaupum á fastafjármunum fyrir 11 milljónir króna sem er að líkindum kaupverð umræddrar bifreiðar. Einnig bættist við lán til tengdra aðila upp á um 43,5 milljónir króna sem var ekki skráð árið 2024. Samhliða er gerð grein fyrir fyrirfram innheimtum tekjum upp á 36 milljónir króna og nýrri langtímaskuld hjá lánastofnun upp á tæpar 8,6 milljónir króna. Til samanburðar voru engar langtímaskuldir eða fyrirfram innheimtar tekjur skráðar á efnahagsreikning félagsins árið 2024 og aukast skuldir og skuldbindingar því umtalsvert milli ára. Handbært fé Kópbois ehf. lækkaði úr 71,4 milljónum í 47,1 milljón króna á síðasta ári. Áætla heildartekjur upp á tæpar 89 milljónir Heimildin áætlaði í tekjublaði sínu að heildartekjur Herra Hnetusmjörs hefðu numið 88.756.630 krónum í fyrra. Þar af hefði hann verið með 74.230.555 krónur í fjármagnstekjur en til þeirra telst meðal annars hagnaður greiddur úr einkahlutafélögum. Tölur Heimildarinnar eru byggðar á gögnum Skattsins og reiknaðar út frá greiddu útsvari og fjármagnstekjuskatti.
Tónlist Tekjur Tengdar fréttir Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Kópbois ehf., félag í eigu Árna Páls Árnasonar, Herra Hnetusmjörs, hagnaðist um 66 milljónir króna á síðasta ári. Rekstrartekjur námu tæplega 150 milljónum króna. 4. júlí 2025 16:05 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Kópbois ehf., félag í eigu Árna Páls Árnasonar, Herra Hnetusmjörs, hagnaðist um 66 milljónir króna á síðasta ári. Rekstrartekjur námu tæplega 150 milljónum króna. 4. júlí 2025 16:05