Táningar handteknir á grundvelli öryggislaganna Vésteinn Örn Pétursson skrifar 30. júlí 2020 08:38 Mikil ólga hefur ríkt í Hong Kong vegna setningar öryggislaganna, sem margir telja aðför að lýðræði í sjálfstjórnarhéraðinu. Myndin er úr safni. Anthony Kwan/Getty
Reiði er á meðal mótmælenda í Hong Kong eftir að fjórir námsmenn voru hnepptir í varðhald í borginni á grundvelli nýrra öryggislaga. Sumir hinna handteknu hafa ekki náð 20 ára aldri. Hinn nítján ára gamli Tony Chung, sem farið hefur fyrir hópi mótmælenda síðustu misserin og þrír félagar hans voru handteknir seint í gærkvöldi á grundvelli nýju laganna. Eru þau sökuð um að skipuleggja og hvetja til þess að Hong Kong segir sig frá Kína, en fólkið hefur barist fyrir auknu lýðræði í sjálfstjórnarhéraðinu sem Kínverjar tóku við af Bretum árið 1997. Fólkið, sem er á aldrinum 16 til 21 árs gæti, á grundvelli nýju laganna, átt yfir höfði sér þriggja til tíu ára fangelsisdóm, eða lífstíðarfangelsi, verði brot þeirra metin alvarleg. Kínverjar höfðu áður heitið því að Hong Kong yrði áfram sjálfstjórnarhérað til ársins 2047, eða þar til 50 ár væru liðin frá því að héraðið hætti að heyra undir Breta sem nýlenda. Kínversk stjórnvöld réttlættu setningu öryggislaganna á þeim grundvelli að aðskilnaðarstefna og málstaður þeirra sem vilja aukið lýðræði og sjálfsstjórn Hong Kong teldust til ógnar við þjóðaröryggi.
Hong Kong Kína Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira