Fresta þarf þremur umferðum í Pepsi Max-deildunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júlí 2020 12:26 Úr leik í Pepsi Max-deild kvenna í sumar. vísir/vilhelm
Fresta þarf tveimur umferðum í Pepsi Max-deild karla og einni í Pepsi Max-deild kvenna vegna tilmæla sóttvarnayfirvalda um að fresta íþróttakappleikjum fullorðinna um viku. Á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar og sóttvarnayfirvalda í dag biðlaði Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn til íþróttahreyfingarinnar að fresta íþróttakappleikjum til 10. ágúst.Er þar átt við kappleiki iðkenda sem eru fæddir árið 2000 eða fyrr. Tíunda umferð Pepsi Max-deildar karla átti að fara fram þriðjudaginn 4. ágúst og miðvikudaginn 5. ágúst. Fimmtudaginn 6. ágúst áttu allir fimm leikirnir í 9. umferð Pepsi Max-deildar kvenna að fara fram. Sunnudaginn 9. ágúst voru fimm leikir í 10. umferð Pepsi Max-deildar karla á dagskrá og einn á mánudeginum þegar leikir mega fara aftur fram ef allt gengur að óskum. Á þessu tímabili, 1.-10. ágúst, áttu tvær umferðir í Lengjudeild karla og ein í Lengjudeild kvenna að fara fram. Sjö leikir eru á dagskrá í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars karla í kvöld eins og staðan er núna. Einn leikur átti að vera á morgun, viðureign Vals og ÍA á Hlíðarenda. Starfsfólk KSÍ fundar núna um næstu skref vegna tilmæla sóttvarnaryfirvalda. „Við eigum eftir að fara betur yfir stöðuna og skoða hvað þetta þýðir fyrir okkur. Við reynum að meta þetta eins vel og við getum og svo verða teknar þær ákvarðanir sem þarf að taka,“ segir Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, í samtali við Vísi. Ekki er mikið svigrúm til að fresta leikjum, sérstaklega í Pepsi Max-deildunum þar sem þegar hefur þurft að fresta leikjum vegna þess að nokkur lið þurftu að fara í sóttkví. Karlalið Stjörnunnar var eitt þeirra sem þurfti að fara í sóttkví. Dagskrá Garðbæinga riðlaðist mikið vegna þess og liðið átti t.a.m. að spila sjö deildarleiki í ágúst. Pepsi Max-deild kvenna á að ljúka 17. október og Pepsi Max-deild karla 31. október.
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Lengjudeildin Mjólkurbikarinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Enski boltinn Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu Fótbolti „Haaland er þetta góður“ Enski boltinn „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Íslenski boltinn Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Körfubolti Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan Fótbolti Dagskráin í dag: Sú elsta og virtasta, enska úrvalsdeildin og Extra Sport Ítalinn hoppaði upp fyrir Alcaraz eftir sigur í París Sport Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Handbolti Fleiri fréttir „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Meistararnir klára tímabilið með stæl Sjá meira