Eva Laufey og Svavar Örn stýra saman Bakaríinu á Bylgjunni Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 6. febrúar 2020 09:30 Eva Laufey og Svavar Örn hafa verið vinir síðan hún var 16 ára gömul. Þau eru spennt fyrir því að stýra saman útvarpsþætti. Samsett mynd
Svavar Örn Svavarsson hefur fengið nýjan meðstjórnanda í Bakaríið á laugardögum því Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir bætist við hóp þáttastjórnanda á Bylgjunni um helgina. Eva Laufey mun stýra Bakaríinu með Svavari alla laugardaga frá níu til tólf en hún er fyrsta konan sem stýrir Bakaríinu án þess að vera þar bara í afleysingum.„Þetta er að gerast frekar hratt en ég var ekki lengi að segja já við þessu verkefni,“ segir Eva Laufey í samtali við Vísi en hún fékk þetta boð í vikunni og fyrsti þáttur þessa öfluga tvíeykis verður á laugardaginn. Eva Laufey tekur við af Einari Bárðasyni sem hefur stjórnað þættinum með Svavari undanfarin misseri.„Ég var strax spennt fyrir þessu verkefni þar sem mig hefur langað að vera meira í útvarpinu og fá að prófa þann miðil sem mér finnst mjög spennandi.“ Eva Laufey hefur ekki verið með útvarpsþátt áður en hún hefur leyst af í Bítinu á Bylgjunni og segir að það hafi verið bæði skemmtilegt og lærdómsríkt. „Þetta er spennandi miðill og býður upp á svo margt skemmtilegt, ég er forvitin og mér þykir ótrúlega skemmtilegt að spjalla við fólk um allskonar hluti. Ég fæ vissulega tækifæri til þess að hitta og spjalla við áhugavert fólk í Íslandi í dag en útvarp er miðill sem býður upp á örlítið meiri léttleika og afslappaðra umhverfi og þess vegna er ég sérlega spennt að prófa mig áfram á þeim miðli.“ Svavar Örn og Einar Bárða hafa stýrt saman Bakaríinu. Eva Laufey segist spennt fyrir því að hafa verið boðið þetta verkefni.Mynd/Bylgjan Ekki eins prúð og á skjánum Eva Laufey og Svavar eru miklir vinir og þekkja hvort annað alveg einstaklega vel. Hann ætlar sér þó að sýna á henni nýja hlið. „Ég kynntist honum þegar ég var 16 ára. Ég man þetta mjög vel, ég fór í gegnum símaskránna og leitaði að hárgreiðslustofu í Reykjavík, hæ landsbyggð. Ég rambaði á Svavar minn, sem betur fer. Hann hefur því verið hárgreiðslumaðurinn minn og mjög góður vinur í 15 að verða 16 ár. Hann er mjög góður vinur minn, ég leita mikið til hans og það er alltaf hægt að treysta á hann í einu og öllu. Hann er sjúklega skemmtilegur og það er ekki dauð stund í kringum hann.“ Svavar er líka einstaklega spenntur fyrir þessu verkefni og hefur strax sett sér markmið. „Hann sagði mér um daginn að hans aðal markmið í lífinu væri að sýna fólki að ég væri villingur en ekki eins prúð og ég sýnist í sjónvarpinu. Þannig þetta verður eflaust eitthvað,“ segir Eva Laufey og hlær. „Ég þekki hann svo vel og hann þekkir mig, við komum úr ólíkum áttum en eigum margt sameiginlegt, það er ekki sjálfsagt að fá tækifæri til þess að starfa með góðum vin og ég er vægast sagt spennt. Svo mun Sindri Sindrason ekki vera langt undan og mun einnig vera með okkur og það er heldur aldrei leiðinlegt í kringum Sindra þannig fólk á von á góðu þori ég að segja, mjög hógvær.“ Eva Laufey fagnaði á dögunum útgáfu þriðju bókar sinnar.Mynd/Instagram Ætla að skapa góða stemningu Eva Laufey segir að þau muni eftir fremsta megni hafa gleðina í fyrirrúmi í Bakaríinu. „Ég er þess vegna sérstaklega spennt að prófa útvarp á laugardögum og þar eru tækifæri til þess að vera afslappaðri, njóta þess að sigla inn í helgina og ræða um daginn og veginn á skemmtilegan hátt. Við munum spjalla við áhugavert og skemmtilegt fólk út um allt land, heyra hvað fólk er að elda, hvað er í gangi í landinu og já svo spjöllum við eflaust mikið um allt og ekki neitt. Okkur langar að skapa góða stemningu og ef okkur tekst það, þá verð ég býsna sátt“ Hún segir að þau muni sjálfsagt gera einhverjar breytingar en fyrst um sinn ætla þau að finna taktinn þeirra á milli og hlusta á það sem hlustendur vilja heyra. Það verður í nógu að snúast hjá Evu Laufey þar sem hún ætlar ekkert að fækka verkefnum sínum á Stöð 2 þrátt fyrir að vera komin með útvarpsþátt. „Ég er einmitt að hefja tökur á nýjum þáttum sem heita einfaldlega Í Eldhúsi Evu í þessari viku og ég er einnig í Ísland í dag teyminu og mun halda því áfram. Ég nýt þess i botn að gera það sem mér finnst skemmtilegt, ég fæ að sinna matargerðinni sem ég elska og ég fæ að hitta svo skemmtilegt og áhugavert fólk á hverjum degi, hvað er betra?“ Eva Laufey var gestur í Einkalífinu á síðasta ári og má horfa á innslagið í spilaranum hér fyrir neðan.
Eva Laufey Fjölmiðlar Vistaskipti Bakaríið Tengdar fréttir Tólf konur valdar í fjölmiðlaþjálfun Félag kvenna í atvinnulífinu og Ríkisútvarpið hafa hleypt af stokkunum verkefni til þriggja ára sem ætlað er að auka fjölbreytni viðmælenda í íslenskum fjölmiðlum. 28. janúar 2020 15:00 Eva Laufey fagnaði útgáfu þriðju bókar sinnar Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir gaf á dögunum út bókina Í eldhúsi Evu. 2. desember 2019 20:00 Sóli baðst afsökunar að hafa skemmt flutning Evu Laufeyjar Jólaþáttur Gumma Ben og Sóla Hólm var í beinni útsendingu á Stöð 2 í gærkvöldi og komu upp allskyns skemmtileg atvik. 23. desember 2019 20:00 „Ein besta ákvörðun sem ég hef tekið“ Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir fann þörf til þess að læra eitthvað nýtt og skellti sér erlendis í námskeið. 9. desember 2019 07:00 Mest lesið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Lífið Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Lífið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Fleiri fréttir Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Sjá meira
Tólf konur valdar í fjölmiðlaþjálfun Félag kvenna í atvinnulífinu og Ríkisútvarpið hafa hleypt af stokkunum verkefni til þriggja ára sem ætlað er að auka fjölbreytni viðmælenda í íslenskum fjölmiðlum. 28. janúar 2020 15:00
Eva Laufey fagnaði útgáfu þriðju bókar sinnar Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir gaf á dögunum út bókina Í eldhúsi Evu. 2. desember 2019 20:00
Sóli baðst afsökunar að hafa skemmt flutning Evu Laufeyjar Jólaþáttur Gumma Ben og Sóla Hólm var í beinni útsendingu á Stöð 2 í gærkvöldi og komu upp allskyns skemmtileg atvik. 23. desember 2019 20:00
„Ein besta ákvörðun sem ég hef tekið“ Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir fann þörf til þess að læra eitthvað nýtt og skellti sér erlendis í námskeið. 9. desember 2019 07:00