HK sækir leikmann úr Víking Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. ágúst 2020 20:00 Bjarni Páll gegn KR. Hann skoraði sigurmark Víkinga í leiknum. Vísir/Bára
Bjarni Páll Linnet Runólfsson hefur fært sig um set í Pepsi Max deildinni í knattspyrnu. Hann hefur samið við HK eftir að hafa leikið með Víkingum allan sinn feril fyrir utan níu leiki með Þrótti Reykjavík á síðustu leiktíð. Er þetta annar leikmaðurinn sem HK fær í félagaskiptaglugganum en miðvörðurinn Martin Rauschenberg kom á láni frá Stjörnunni og skoraði í sínum fyrsta leik er HK vann Fjölni 3-1. Hinn 23 ára gamli Bjarni Páll hefur ekki fengið mörg tækifæri í liði Víkinga í sumar og aðeins tekið þátt í tveimur leikjum. Bjarni getur brugðið sér í alla kvikinda líki og mögulega er honum ætlað að leysa hægri bakvarðarstöðuna hjá HK en félagið seldi Birkir Valur Jónsson, sinn eina hægri bakvörð, til Slóvakíu á dögunum. Hefur Valgeir Valgeirsson leyst hægri bakvörðurinn í síðustu leikjum en Brynjar Björn Gunnarsson – þjálfari liðsins – vill eflaust koma Valgeiri framar á völlinn þar sem hæfileikar hans nýtast betur. Alls hefur Bjarni Páll leikið 53 leiki í deild og bikar. Í þeim hefur hann skorað þrjú mörk, þar á meðal sigurmark Víkings gegn KR sumarið 2018. HK er í 9. sæti deildarinnar og mætir FH í Kaplakrika annað kvöld. Reikna má með að Bjarni Páll verði í leikmannahópi liðsins en hann fær leikheimild á morgun.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla HK Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Besta tenniskona heims tekur þátt í nýrri „Baráttu kynjanna“ Sport Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Enski boltinn Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Fleiri fréttir „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap Sjá meira