Steindi bókaði fimm töframenn í þrítugsafmæli Bents sem er ekki hrifinn af töframönnum Stefán Árni Pálsson skrifar 4. september 2020 12:30 Gömul og góð mynda af þeim félögunum saman.
Rappararnir Emmsjé Gauti og Arnar Freyr úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur byrjuðu nýlega með hlaðvarpið Podkastalinn. Nafnið vísar í síðdegisútvarpsþáttinn Kastalann sem strákarnir stýrðu fyrir 6 árum á KissFM. Í þættinum fara þeir um víðan völl, segja sögur af sjálfum sér og ræða það sem þeir kalla litlu málin. Í nýjasta þættinum, þeim fjórða í seríunni rýna vinirnir í tilvist töframanna og annarra sambærilegra starfsstétta. Einhverra hluta vegna njóta töframenn takmarkaðrar virðingar og eru oft skotspónn gríns, samanber persónu Will Arnett í sjónvarpsþáttunum Arrested Development sem margir þekkja ágætlega. „Trúðar eru teknir meira alvarlega en töframenn og ég sver það,“ segir Arnar. Sumir hafa líka óbeit á töframönnum eins og kemur í ljós þegar Gauti spilar upptöku af sögu sem Steindi segir honum af þrítugsafmæli rapparans Bents. Þessa sögu má heyra í klippunni hér fyrir neðan. Töframenn eru ekki þeir einu sem fá á baukinn í þættinum því þegar umræðan berst að miðlum þá ætlar allt um koll að keyra. Arnar ber augljóslega ekki hlýhug til miðla, þykir það kvikindislegt brask og segir: „Miðlar eru verri en töframenn. Töframenn eru náttúrulega bara skemmtikraftar. Það vita allir að þeir eru ekki að gera alvöru töfra en miðlar reyna að halda því fram að það sem þeir gera sé satt.“ Þessu er Gauti sammála og til að undirstrika mál sitt um að hver sem er geti í raun verið miðill ákveður hann að setja sig í það hlutverk og rýna í líf Arnars. Þessa brellu má sjá í klippunni hér fyrir neðan. Hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni.
Grín og gaman Mest lesið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið Sonur Mari og Njarðar fæddur Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist „Ég vil vera bestur í öllu“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið Fleiri fréttir Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Sjá meira