Sjáðu mörkin úr nýliðaslagnum á Nesinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. september 2020 10:30 Pétur Theodór Árnason skoraði fyrra mark Gróttu gegn Fjölni. vísir/hag
Sextándu umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í gær með leik nýliða Gróttu og Fjölnis á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi. Leikar fóru 2-2. Jafnteflið gerir ekki mikið fyrir liðin sem eru í tveimur neðstu sætum deildarinnar. Grótta er með sjö stig og Fjölnir fimm en liðið í 10. sæti, KA, er með fjórtán stig. Orri Þórhallsson kom gestunum úr Grafarvogi yfir á 21. mínútu og staðan var 0-1 í hálfleik, Fjölni í vil. Á 64. mínútu jafnaði Pétur Theodór Árnason með skalla eftir hornspyrnu Óskars Jónssonar. Fjölnir tók miðju, Peter Zachan sendi boltann inn fyrir vörn Gróttu á Jón Gísla Ström, Hákon Rafn Valdimarsson felldi hann og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæmdi vítaspyrnu sem Jóhann Árni Gunnarsson skoraði úr. Það dugði þó Fjölni ekki til að vinna fyrsta sigurinn í sumar því Tobias Sörensen jafnaði með skalla eftir hornspyrnu Kristófers Orra Péturssonar þegar fjórar mínútur voru til leiksloka. Þetta var fyrsti leikur Sörensens fyrir Gróttu. Mörkin úr leiknum á Seltjarnarnesi í gær má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Grótta 2-2 Fjölnir
Pepsi Max-deild karla Grótta Fjölnir Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Þróttur - Þór/KA | Vinnur Þróttur þriðja leikinn í röð? Breiðablik - ÍBV | Halda Blikar toppsætinu eftir Evrópuleikinn? Fram - Stjarnan | Losnar Fram úr fallbaráttunni? Víkingur - Grindavík/Njarðvík | Kemst Víkingur úr botnsætinu? Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Sjá meira