Vildi útskýringar á rauða spjaldinu en fékk sjálfur reisupassann Anton Ingi Leifsson skrifar 20. september 2020 09:00 Rauða spjaldið fer á loft. vísir/getty
Slaven Bilic, þjálfari WBA, var ekki sáttur með frammistöðu Mike Dean, dómara, í leik Everton og WBA í gær. Everton unnu 5-2 sigur eftir að hafa lent 1-0 undir en Kieran Gibbs fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks fyrir að ýta James Rodriguez. Bilic gekk til Dean í hálfleik og vildi fá skýringar á spjaldinu og fyrsta marki Everton en fékk þess í stað sjálfur að líta rauða spjaldið. „Sérfræðingarnir mínir sögðu að það væri brot á okkur áður en þeir skoruðu fyrsta markið. Sem stjóri á ég rétt á því að spyrja dómarann hvað sé í gangi,“ sagði Bilic. „Það var ekki eins og að leikurinn var í gangi. Það var hálfleikur og það var enginn þarna. Ég blótaði ekki. Ég spurði hann pirraður en fór ekki yfir línuna. Hann hunsaði mig og gaf mér rautt spjald.“ „Sem stjóri verðurðu að eiga kost á því að spyrja ef þú ferð ekki yfir línuna. Ég sagði við hann að ef hann vildi drepa okkur, þá ætti hann að gera það,“ sagði Bilic. WBA er án stiga eftir fyrstu tvo leikina og bæði Gibbs og Bilic verða upp í stúku í næstu umferð.
Enski boltinn Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti „Langir fætur hjálpa við að sparka í hausinn á þeim“ Sport Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Körfubolti Fleiri fréttir Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Sjá meira