Vandræði Eyjamanna halda áfram og Keflavík skellti Þrótt Anton Ingi Leifsson skrifar 21. september 2020 18:23 Keflvíkingar eru á fleygiferð. vísir/vilhelm
Tveimur leikjum er lokið í Lengjudeild karla í dag. Vandræði ÍBV að vinna fótboltaleiki heldur áfram og Keflavík skellti Þrótt í Reykjanesbæ. ÍBV komust yfir á sjöttu mínútu með sjálfsmarki Nikola Kristins Stojanovic en átta mínútum síðar jafnaði Fannar Daði Malmquist Gíslason metin. Eyjamenn komust aftur yfir fyrir hlé en Jose Sito kom þeim þá yfir á nýjan leik. Þórsarar fengu vítaspyrnu á 61. mínútu og úr henni skoraði Alvaro Montejo. Þórsarar voru einum manni fleiri frá 84. mínútu er markvörðurinn Halldór Páll Geirsson fékk að líta rauða spjaldið. Lokatölur 2-2. Þetta er sjötti deildarleikurinn í röð sem ÍBV mistekst að vinna en liðið vann síðast deildarleik er liðið mætti Fram 25. ágúst. Liðin eru jöfn í fjórða og fimmta sæti deildarinnar með 28 stig. Pepsi Max deildardraumar Eyjamanna að renna út í sandinn. Keflvíkingar komust aftur á topp Lengjudeildarinnar með 4-2 sigri á Þrótti í Keflavík í kvöld. Staðan var orðin 3-0 eftir 35 mínútu en Joey Gibbs, Adam Árni Róbertsson og Nacho Heras skoruðu fyrstu þrjú mörk Keflvíkinga. Joey Gibbs heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Keflavík en hann skoraði annað mark sitt og fjórða mark Keflvíkinga á 59. mínútu. Ágúst Leó Björnsson minnkaði muninn fyrir Þrótt á 79. mínútu og Esau Rojo Martinez skoraði úr vítaspyrnu á 92. mínútu. Lokatölur 4-2. Keflavík er á toppi deildarinnar, með einu stigi meira en Leiknir, en Keflvíkingar eiga leik til góða. Þróttur er í 10. sætinu með tólf stig, jafn mörg stig og Leiknir sem er í fallsæti, en lakari markahlutfall.
Lengjudeildin ÍBV Keflavík ÍF Þróttur Reykjavík Þór Akureyri Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira