Í beinni: Vodafonedeildin í CS:GO, viðsnúningur á heimavelli Bjarni Bjarnason skrifar 24. september 2020 19:01
Úrvalsliðin etja kappi í Vodafonedeildinni í CS:GO í kvöld. Áttunda umferð deildarinnar verður leikinn í kvöld og er þetta önnur viðureign liðana. Munurinn er þó sá að skipst hefur verið á heimavallar forskotinu. En heimavallarliðið fær að velja kortið. Í fyrsta leik kvöldsins mætast XY og GOAT. XY mæta heitir til leiks með tvo sigurleiki í röð og heimavallar forskot í bakhendinni. GOAT hafa sýnt að þeir eiga heima í deildinni en þeir sigruðu Þór í síðustu umferð. Því verður spennandi að sjá hvort XY takist að endurleika fyrri viðureign liðanna á móti nú reyndara liði GOAT. Í millileik kvöldsins mætast Fylkir og KR. Fyrri viðureign þessara liða var hörkuspennandi og rétt marði lið KR sigur 16 - 13, þá á heimavelli. Fylkir er nú á heimavelli og vonum við eftir annarri eins viðureign þar sem all verður lagt undir. Lokaleikur kvöldsins er Dusty á móti Þór. Dusty hafa verið óstöðvandi í deildinni hingað til og lagt hvert liðið á fætur öðru í einhliða viðureignum. Þór hafa sýnt hvað í þeim býr í syrpum en ekki náð að spila heilan leik á sannfærandi máta. Ef Þór sýnir sínar bestu hliðar í kvöld verður þetta erfiður biti fyrir Dusty að kyngja. Fyrsta viðureign kvöldsins hefst kl 19:30 og verður sýnd á Stöð 2 esport og hér á Vísi. Leikir kvöldsins verða samkvæmt dagskrá hér að neðan. 19:30 XY - GOAT 20:30 Fylkir - KR 21:30 Dusty - Þór Útsending er hefst kl 19:15 og stendur yfir fram eftir kvöldi og hægt er að fylgjast með henni hérna.
Þór Akureyri KR Fylkir Dusty Vodafone-deildin Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fór grátandi af velli Sport Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti