Segir meiðsli Thiagos ekki næstum því jafn slæm og Vans Dijk en óvíst með miðvikudaginn Anton Ingi Leifsson skrifar 19. október 2020 23:00 Thiago, Klopp og Robertson eftir jafnteflið í Guttagarði. Catherine Ivill/Getty Images
Það er langt því frá að vera hundrað prósent að Thiago verði með í leiknum gegn Ajax í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Þetta sagði Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, í samtali við heimasíðu félagsins. Thiago fékk högg í grannaslagnum gegn Everton um helgina og það gæti leitt til þess að hann missi af leiknum gegn Ajax í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar á miðvikudagskvöldið. „Hann fékk högg, eitt mjög þungt högg. Þetta er ekki næstum því jafnt slæmt og hjá Van Dijk en hvort að hann sé klár á miðvikudaginn? Ég veit það ekki. Við verðum að bíða og sjá,“ sagði Klopp í samtali við heimasíðu Liverpool en Virgil Van Dijk sleit krossband í leiknum. Managing the Reds against a fellow heavyweight of European football is a prospect that excites Jürgen Klopp... #LFC | #UCL— Liverpool FC (@LFC) October 19, 2020 Það er þó nokkuð um meiðsli í leikmannahópi Liverpool og eins og greint var frá fyrr í dag er óvíst hverjir verða í miðri vörn liðsins. Þó eru einhverjar jákvæðar fréttir einnig úr herbúðum liðsins. „Naby æfði með í gær svo þetta er jákvætt. Oxlade tekur aðeins lengri tíma en þetta lítur vel út og hann er í góðu skapi. Alisson er einnig byrjaður að æfa með,“ bætti Klopp við. Leikur Liverpool og Ajax verður í beinni útsendingu á miðvikudagskvöldið. Upphitun hefst klukkan 18.30 og öllum leikjum dagsins verður svo gerð skil í Meistaradeildarmörkunum eftir leik.
Meistaradeild Evrópu Enski boltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Fleiri fréttir Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Sjá meira