Þakkaði fyrir að gera æfinguna erfiðari og rúllaði henni síðan upp Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2020 08:01 Katrín Tanja Davíðsdóttir með fólkinu sem komst á pall á heimsleikunum í CrossFit. Dave Castro er þarna að taka sjálfu af sér og verðlaunahópnun. Katrín Tanja þakkaði Dave einmitt fyrir þegar hann tvöfaldaði lokaæfingu fyrsta dagsins í miðri æfingu en íslenska CrossFit konan stakk allar stelpurnar af eftir það. Instagram/@crossfitgames
Þjálfari Katrínar Tönju Davíðsdóttur, Ben Bergeron, var ekki í neinum vafa um hver var uppáhaldsæfingin hans var á nýloknum heimsleikum í CrossFit. Íslenska CrossFit konan Katrín Tanja Davíðsdóttir vann enn á ný hug og hjörtu fólks á heimsleikunum með jákvæðu hugarfari og einstöku keppnisskapi. Hvergi kom þetta betur fram en í æfingu þegar flestir keppendur misstu móðinn. Katrín Tanja Davíðsdóttir leit ekki til baka á heimsleikunum á dögunum eftir sigur sinn í lokagrein fyrsta dagsins. Æfingin var Ranch Loop eða Búgarðshlaupið í beinni þýðingu. Þetta var þriggja mílu víðavangshlaup upp um holt, hæðir og dali CrossFit búgarðsins. Eða þetta þátti að vera þriggja mílna hlaup. Það breyttist skyndilega í miðri keppni. Katrín Tanja og hinar keppendurnir í karla- og kvennaflokki voru þarna að klára fimmtu greinina á svakalega krefjandi degi. Þegar keppendurnir komu í markið eftir þessar þrjár mílur (4,8 kílómetrar) og héldu að þessi hrikalega erfiði keppnisdagur væri loksins á enda þá fengu þeir sjokkerandi fréttir. Jú þau voru bara hálfnuð. Katrín Tanja Davíðsdóttir var ekki meðal þeirra fyrstu eftir fyrri hringinn en efldist öll við fréttirnar og stakk síðan allar stelpurnar af. Þegar þjálfari hennar Ben Bergeron var beðinn um að velja uppáhaldsgreinina sína á heimsleikunum þá var hann fljótur að velja víðavangshlaupið þar sem Katrín Tanja sýndi svona svakalegan mikinn andlegan styrk. View this post on Instagram COACH BEN // My favorite moment was @thedavecastro s surprise extra 3 miles during the trail run and how @katrintanja saw that adversity for what it was- an opportunity. Not only that, but she actually thanked Dave when he told her. She then went on to demolish the second loop. It was the turning point for her Games. : @crossfitgames #comptrain A post shared by CompTrain (@comptrain.co) on Oct 30, 2020 at 1:42pm PDT „Uppáhaldsmómentið mitt var þegar Dave Castro kom öllum á óvart með því að bæta þremur mílum við víðavangshlaupið og hvernig Katrín Tanja sá það mótlæti sem tækifæri sem það auðvitað var. Hún gerði meira en það því hún þakkaði Dave fyrir þegar hann sagði henni frá þessu. Hún fór síðan af stað og rústaði seinni hringnum. Þetta voru þáttaskil hjá henni á heimsleikunum,“ sagði Ben Bergeron en orðin hans voru birt á Instagram síðu CompTrain. Eins og við höfum fjallað vel um hér á Vísi þá hefur þjálfari Katrínar Tönju unnið mikið með andlega þáttinn á æfingum hennar í sumar. Hann reyndi oft að gera hlutina erfiðari fyrir hana eins og sem dæmi að henda yfir hana ryki og drullu þegar hún var í miðri þolæfingu. Það er auðvitað erfitt að búa til magnað hugarfar eins og Katrín Tanja er með en það er ljóst að Ben Bergeron hefur gert vel í að rækta það upp. Það má sjá færsluna hér fyrir ofan og hér fyrir neðan má síðan sjá upptökuna frá þessari fimmtu og síðustu grein á degi eitt. watch on YouTube Fram að þessari fimmtu grein þá hafði Katrín Tanja Davíðsdóttir endaði í fimmta og fjórða sæti í greinunum á undan. Hún þurfti að gera eitthvað sérstakt og hún gerði það. Eftir þessa frábæru frammistöðu endaði Katrín Tanja bara einu sinni neðar en í þriðja sætið í síðustu sjö greinum keppninnar. Katrín Tanja endaði á að tryggja sér annað sætið í lokagreininni sem var önnur martraðargrein í lok erfiðs dags. Katrín fékk á endanum 665 stig, vann silfurverðlaun og endaði 80 stigum á undan þriðja sætinu.
CrossFit Tengdar fréttir Ísland á tvær af þremur tekjuhæstu CrossFit konum ársins Katrín Tanja Davíðsdóttir og Sara Sigmundsdóttir blómstruðu á sitthvorum hluta CrossFit tímabilsins en eru báðar meðal tekjuhæstu kvenna 2020. 2. nóvember 2020 08:00 Katrín Tanja táraðist þegar hún fékk Spirit verðlaunin Það er erfitt að tárast ekki líka þegar horft er á verðlaunlaunamyndband Katrínar Tönju Davíðsdóttur á síðum heimsleikanna í CrossFit. 30. október 2020 08:00 Íslensku CrossFit stelpurnar eru 7-1 yfir á móti þeim bandarísku Þökk sé framgöngu Katrínar Tönju Davíðsdóttur um síðustu helgi þá er Ísland enn með forystu á Bandaríkin í verðlaunapeningum á síðustu tíu heimsleikum í CrossFit. 29. október 2020 08:31 Katrín Tanja búin að vinna alla verðlaunapeningana eins og Anníe Mist Katrín Tanja Davíðsdóttir á nú alla mögulega liti af verðlaunapeningum frá því á heimsleikunum í CrossFit. 26. október 2020 11:30 Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Fótbolti Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Liverpool vann risaslaginn Meistararnir lágu á heimavelli Sneypuför danskra til Lundúna Natasha semur við nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur Cunha eða Mbeumo? Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Mickelson blandast aftur inn í innherjasvikamál David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Bikarmeistararnir fara norður Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Gyökeres ekki með Arsenal í Prag Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Þjálfari Alberts rekinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Sjá meira
Ísland á tvær af þremur tekjuhæstu CrossFit konum ársins Katrín Tanja Davíðsdóttir og Sara Sigmundsdóttir blómstruðu á sitthvorum hluta CrossFit tímabilsins en eru báðar meðal tekjuhæstu kvenna 2020. 2. nóvember 2020 08:00
Katrín Tanja táraðist þegar hún fékk Spirit verðlaunin Það er erfitt að tárast ekki líka þegar horft er á verðlaunlaunamyndband Katrínar Tönju Davíðsdóttur á síðum heimsleikanna í CrossFit. 30. október 2020 08:00
Íslensku CrossFit stelpurnar eru 7-1 yfir á móti þeim bandarísku Þökk sé framgöngu Katrínar Tönju Davíðsdóttur um síðustu helgi þá er Ísland enn með forystu á Bandaríkin í verðlaunapeningum á síðustu tíu heimsleikum í CrossFit. 29. október 2020 08:31
Katrín Tanja búin að vinna alla verðlaunapeningana eins og Anníe Mist Katrín Tanja Davíðsdóttir á nú alla mögulega liti af verðlaunapeningum frá því á heimsleikunum í CrossFit. 26. október 2020 11:30