Enn beini ég orðum að forsætis- og dómsmálaráðherra en það er sannarlega, af gefnu tilefni Margrét Kristín Blöndal skrifar 10. nóvember 2020 15:15 Eins og rifjað hefur verið upp ítrekað að undanförnu hefur forsætisráðherra vor lýst einu og öðru yfir. Hún hefur hún sagt að það sé sín skoðun að almannahagur eigi að vera í forgangi á víðsjárverðum tímum, hún hefur talað um skoðun sína á harkalegri framkvæmd laga á fólki í viðkvæmri stöðu, hún hefur talað um ríka ástæðu þess að hlusta eftir því þegar almenningi er misboðið og hún hefur sett spurningamerki við að framfylgja lögum sem byggja ekki á mannúð: „Frú forseti. Þegar framkvæmd laga sem varðar fólk í sérstaklega viðkvæmri stöðu, börn, hefur það í för með sér að réttlætiskennd jafn margra er misboðið, þá er ástæða til að hlusta. Þegar UNICEF og Rauði krossinn biðja okkur að hlusta er ástæða til að hlusta, hlusta og velta því fyrir sér hvort við séum að framfylgja lögum sem eiga að byggjast á mannúð með þeim hætti sem við eigum að gera þannig að þau uppfylli skyldur barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem við höfum undirgengist. Það er nefnilega ástæða til að hlusta og velta því fyrir sér. Það er niðurstaðan sem fulltrúar sex flokka af sjö hér á Alþingi komust að, að það væri ástæða til að hlusta. Ég velti því fyrir mér hvort fulltrúar þess flokks sem ekki kýs að styðja þessa breytingu ættu ekki að hlusta. Ég segi já við þessari breytingu.“ Katrín er svo komin í valdamesta embætti landsins og þar hefur hún setið í næstum heilt kjörtímabil en hefur ekki enn, séð ástæðu til að fylgja þessum skoðunum sínum eftir. Nú heyrist ekki hljóð úr horni, hún situr hjá og lætur eins og ekkert sé, þegar Landsréttardómari, sem er þar að auki fyrrum starfsmaður Kærunefndar Útlendingamála, dæmir fjölskylduna, þær Coumba og Marie, þriggja og sex ára og pabba þeirra og mömmu, þau Bassirou Ndiaye og Mahe Diouf til brottrekstrar og enn og aftur er okkur algerlega misboðið. Fjölskyldan frá Senegal sem hefur verið hér á landi í á sjöunda ár.Vísir/SigurjónÓ Allur almenningur sér í hendi sér að dómurinn er fráleitur og óréttlátur. Í málsmeðferðinni hefur ekkert tillit verið til stöðu barnanna og þar með fótumtreður dómsyfirvaldið vísvitandi réttindi þeirra eða sýnir makalausa vanhæfni. Sprengir upp tilveru fjölskyldunnar sem búið hefur hér, lifað og starfað í sjö ár, tilveru þar sem Bassirou og Mahe hafa fylgt stelpunum sínum í skólann á hverjum morgni áður en þau ganga til starfa í þágu íslensks samfélags. Þau hafa borgað skattinn með glöðu geði þrátt fyrir að hafa ekki notið sömu réttinda og aðrir skattgreiðendur. Þess í stað er þeim haldið, alveg ókeypis í sársaukafullum klóm kvíða, ótta og óvissu um hvort þau fái að vera hér þar sem þau hafa skapað sér tilveru og vilja byggja framtíð sína og dætra sinna áhyggjulaust eða fara burt til lands, þar sem þau eru ekki velkomin og getur reynst þeim hættulegt. Lands, sem stelpurnar hafa aldrei séð eða komið til en eru þó löngu orðnar meðvitaðar um að foreldrar þeirra vilji alls ekki vera þar af einhverjum ástæðum. Það er nóg. Nú hefur þeim verið haldið milli vonar og ótta í sjö ár og niðurstaðan eftir sjö ár er algerlega óásættanleg. Dómurinn kveður upp að burt skuli þau, og vonin er að engu orðin. Þau skulu umyrðalaust hlíta því að missa heimili sitt, samband við vini sína og vandamenn og það einmitt nú, á tímum faraldurs þar sem heimsbyggðin er öll með stjarfa af ótta við skæðan vírus! Börnin að leik í snjónum.Vísir/Vilhelm Maria og Coumba hafa verið ríkisfangslausar frá fæðingu! Það eitt er bara óskiljanlegt að mínu viti og það er fyrirmyndarríkið, okkar, sem dæmir þau eftir allan þennan tíma óvissu og án réttinda, ekki boðleg hér, svo þeim skuli úthýst, með valdbeitingu, sýnist yfirvaldinu það nauðsynlegt. Nú situr forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir hljóð hjá á meðan dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir framfylgir hættulegri stefnu flokks síns með dyggri aðstoð stofnanna sem undir hana heyra þar sem hver óhæfugjörningurinn er framin um annann þverann. Báðar láta þær eins og þær heyri ekki einu sinni óminn af reiði almennings sem vill alls ekki að fjölskyldan verði rekin burt. Rúmlega tuttugu þúsund manns hafa þegar skrifað undir mótmæli þess efnis. Þau eiga nefnilega heima hér. Coumba og Maria eru fæddar hér á landi, hafa verið hér alla ævi og við viljum að þær og foreldrar þeirra verði látin í friði. Sýnið þeim þá sjálfsögðu kurteisi að biðja þau afsökunar á því að hafa valdið þeim skaða sem þegar er orðinn og látið þau svo í friði. Hvað er annars að frátta af þeirri mannúð sem svo títt var nefnd þarna í ræðustól um árið? Bassirou Ndiaye og Mahe Diouf hafa búið hér og starfað í næstum sjö ár enn á nú að vísa úr landiVísir/Vilhelm Það fer sannarlega ekki hjá því að bæði dómsmála og forsætisráðherra tjá sig um eitt og annað opinberlega, hvort heldur það eru hugmyndir um að vista fólk á “afmörkuðu svæði” eftir að ákveðið hefur verið að vísa því úr landi svo að það “týnist” nú örugglega ekki eða nýfengnar hugmyndir Katrínar um ráð til að sporna við kynbundnu ofbeldi sem hún tjáði í kvöldfréttum í gær eftir fund “Heimsþings kvenna í valdastöðum” um hættu á versnandi stöðu kvenna (væntanlega ekki í valdastöðum) í Covid 19. Auðvitað getum við alltaf reitt okkur á að forréttindastéttin horfi endurtekið, ástúðlega og skilningsrík úr fjarlægð niður til almúgans, það er ekkert nýtt. Það gerði Marie Antonette líka. Þar er bara mætt hin fullkomna firring, síendurtekin. Hættið að beita Mariu og Coumba, mömmu þeirra og pabba því andlega ofbeldi sem felst í að yfirvöld hér hafi haldið þeim í sársaukafullum klóm kvíða og óvissu, um hvort þau séu boðleg eða óboðleg og skuli því hypja sig, hverfa á brott frá heimili sínu, slíta bönd við vini og vandamenn og það einmitt nú, á þessum tímum Covid 19 faraldursins þar sem heimsbyggðin er öll með stjarfa af ótta við skæðan vírusinn! Það alveg kristaltært og á allra vitorði að íslensk stjórnvöld brjóta ítrekað lögfestar skuldbindingar sínar á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hverju sætir það? Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er ekki annars flokks grínplagg og þar stendur skýrt og greinilega í 3. grein, 1. tölulið: "Það sem barni er fyrir beztu skal ávallt hafa forgang, þegar félagsmálastofnun á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir, sem varða börn”. Þetta hefur verið margtuggið ofan í hálsmálið á hverjum sem vill heyra og er alls ekki torskilið. Ég lýsi hér um leið eftir þeim aðilum sem starfa beinlínis við að gæta hagsmuna barna! Umboðsmaður barna, Salvör Nordal og starfsfólk þeirrar stofnunnar. https://www.barn.is/ Þeir átta talsmenn barna á Alþingi sem með undirritun yfirlýsingar skuldbundu sig til þess að hafa barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í störfum sínum á þinginu og “leitast við að tileinka sér barnvæn sjónarmið sem og að hafa hagsmuni barna að leiðarljósi.” Þetta eru þingmennirnir Inga Sæland, Líneik Anna Sævarsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Jón Þór Ólafsson, Oddný G. Harðardóttir, Andrés Ingi Jónsson, Bryndís Haraldsdóttir og Þorsteinn Víglundsson ásamt varamönnum. Hvar gætir þessa í ykkar störfum? Mér leikur forvitni á að vita það? Við berum skýlausa ábyrgð á velferð allra barna í kringum okkur. Magga Stína Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hælisleitendur Margrét Kristín Blöndal Mest lesið Ferðamenn: Vanmetnir skattgreiðendur í íslensku hagkerfi Þórir Garðarsson Skoðun Endurnýjun hugarfarsins Bjarni Karlsson Skoðun Við höfum ekki efni á tvískinnungi SFS Vala Árnadóttir Skoðun Góð vísa... Ole Anton Bieltvedt Skoðun Er kominn tími á Útlendingafrí? Marion Poilvez Skoðun Hvenær leiddist þér síðast? Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal Skoðun Hvað getum við lært af Víetnamstríðinu? Einar Magnússon Skoðun Halldór 03.05.2025 Halldór Ríkisstjórn sem skeytir engu Diljá Matthíasardóttir Skoðun Við höfum ekki efni á norsku leiðinni Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Endurnýjun hugarfarsins Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Ferðamenn: Vanmetnir skattgreiðendur í íslensku hagkerfi Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Góð vísa... Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Við höfum ekki efni á tvískinnungi SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað getum við lært af Víetnamstríðinu? Einar Magnússon skrifar Skoðun Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar Skoðun Fristund.is fyrir öll - líka eldra fólk Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem skeytir engu Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir skrifar Skoðun Fólkið sem gleymdist í Grindavík Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Á að sameina ÍSÍ og UMFÍ? Ómar Stefánsson skrifar Skoðun Elsku ASÍ, bara… Nei Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Gigtarmaí 2025 – Stuðlum að forvörnum, fræðslu og vitundarvakningu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Við höfum ekki efni á norsku leiðinni Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Sósíalistar á vaktinni í átta ár Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Styðjum þá sem bjarga okkur Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hver er viðskiptalegur ávinningur af EES-samningnum? Sigurbjörn Svavarsson skrifar Skoðun Embætti þitt geta allir séð Ragnheiður Davíðsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til hæstvirts innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, um íslensku og ábyrgð Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Hver á dómur að vera hjá ungmenni fyrir að fremja alvarlegt afbrot, jafnvel morð? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Sigursaga Evrópu í 21 ár Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Verkalýðshreyfingin, Dagbjört og ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Börnin á Gasa Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Myndir þú ráða fatlað fólk í vinnu? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvað ert þú að gera? Eiður Welding skrifar Skoðun Rauðir sokkar á 1. maí Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun 1. maí er líka fyrir fatlað fólk! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðshreyfingin á næsta leik í Evrópuumræðunni Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Á milli steins og sleggju Heinemann Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar
Skoðun Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir skrifar
Skoðun Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna Erlingur Erlingsson skrifar
Skoðun Gigtarmaí 2025 – Stuðlum að forvörnum, fræðslu og vitundarvakningu Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til hæstvirts innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, um íslensku og ábyrgð Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Hver á dómur að vera hjá ungmenni fyrir að fremja alvarlegt afbrot, jafnvel morð? Davíð Bergmann skrifar