Réttartannlæknar saka Rósu Björk um alvarlegar rangfærslur Sylvía Hall skrifar 26. nóvember 2020 22:28 Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður utan flokka, er flutningsmaður tillögunnar. Vísir/Vilhelm Fjórir réttartannlæknar, sem hafa séð um aldursgreiningar flóttamanna hér á landi frá upphafi, hafa gert harðorðar athugasemdir við frumvarp Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur til breytinga á lögum um útlendinga. Telja þeir frumvarpið auðvelda fullorðnum að smeygja sér í raðir barna til að njóta réttarverndar sem ætluð er börnum.
Umsögnin er skrifuð af þeim Svend Richter, Sigríði Rósu Víðisdóttur, Guðlaugi J. Jóhannssyni og Sonju Rut Jónsdóttur, réttartannlæknum sem öll kenna við tannlæknadeild Háskóla Íslands. Breytingartillaga Rósu Bjarkar miðar að því að aldur flóttafólks verði ákvarðaður með heildstæðu mati í stað líkamsrannsóknar. Réttartannlæknarnir gagnrýna tillöguna og segja fullyrðingar Rósu Bjarkar um að Evrópuráðið, Evrópuráðsþingið og ráðherranefnd Evrópusambandsins hafi lagst gegn tanngreiningum vera skáldaðar. „Rangt er að þessar stofnanir hafi lagst gegn aldursgreiningum af tönnum „ sem eru taldar afar óáreiðanleg aðferð til að mæla aldur barna.“ Engin aðferð til að áætla aldur barna og ungmenna er nákvæmari. Þeir sem hafa séð um aldursgreiningar umsækjanda um vernd frá upphafi hafa beitt sér fyrir því að aldursgreining byggi, auk tannþroska, einnig á beinþroska, til samræmis við önnur Norðurlönd og nánast öll lönd Evrópu,“ segir í umsögninni. Þá segja þeir mat félagsráðgjafa og sálfræðinga ekki byggja á sama vísindalega grunni og líkamsrannsóknir, þar sem fyrir liggja staðalfrávik og öryggismörk. Aðeins tvö Evrópuríki beiti ekki líkamsrannsóknum til aldursgreininga en engin rannsóknargögn liggi fyrir um gagnsemi sálfræðilegra þroskaprófa til aldursgreininga. Bretland er eitt þeirra landa sem notar ekki tanngreiningar til þess að áætla aldur flóttamanna.Vísir/Getty Breytingarnar íþyngi umsækjendum um alþjóðlega vernd Umsagnaraðilarnir óttast enn fremur að breytingarnar komi til með að lengja það ferli sem umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa að fara í gegnum. Ólíklegt sé að vafa um aldur verði eytt með sálfræðigreiningu og því þyrfti alltaf að koma til líkamsrannsókna. Með þessu væri aðeins verið að fjölga skrefunum. „Það er mat okkar að það sé fjarri lagi að líkamleg aldursgreining eigi að vera úrræði sem gripið er til ef allt annað þrýtur. Ef yfirvöld meta að ábyggileg skilríki séu ekki til staðar og grunur leikur á að viðkomandi sé ekki barn, er eðlilegt að hann fari í líkamlega aldursgreiningu,“ segir í umsögninni. Í þeirra huga sé engin millileið. „Það hefur alls ekkert með það að gera hvort umsækjandi, sem kemur skaddaður frá stríðshrjáðum löndum, fái sálfræðiaðstoð og aðstoð félagsfræðinga. Vonandi fá þeir sem þurfa slíka aðstoð hana.“ „Frumvarpið mun ekki bæta rétt barna“ Í umsögninni segir að réttarlæknisfræðilegar aldursgreiningar snúist um að tryggja börnum rétt sem þau eigi samkvæmt alþjóða sáttmálum, og þar með koma í veg fyrir að fullorðnir taki sér þann rétt. Reynslan á Norðurlöndum sýni að flestir sem segjast vera fylgdarlaus börn séu fullorðnir. „Þar er Ísland engin undantekning,“ segir jafnframt í umsögninni. Þau telja rétt barna ekki styrkjast, verði frumvarpið að lögum. „Frumvarpið mun ekki bæta rétt barna heldur auðvelda fullorðnum að smeygja sér í raðir barna til að njóta réttarverndar sem börnum eiga að vera tryggð. Með órökstuddum dylgjum og röngum tilvísunum er reynt að grafa undan þeirri aðferðafræði sem best tryggir börnum rétt sinn og langflest lönd Evrópu fylgja.“
Alþingi Flóttamenn Hælisleitendur Mest lesið Sprenging í Osló og stórt svæði girt af Erlent Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Innlent „Alvarlegasta árásin gegn dönskum innviðum til þessa“ Erlent Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Innlent Errol Musk sakaður um að misnota börn sín Erlent Gagnrýndi allt og alla í langri og slitróttri ræðu Erlent Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Innlent Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Innlent Fóru með fleipur um einhverfu og bóluefni Erlent Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Innlent Fleiri fréttir „Við erum notuð sem hræðsluáróður fyrir verðandi foreldra“ „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Núverandi kvikusöfnunartímabil geti dregist á langinn Brennuvargur gengur laus, stórfjölgun krabbameina og í beinni frá Köben Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Inga eigi að kalla saman þjóðaröryggisráð þegar í stað Skólameistarar styðja ekki breytingar ráðherra Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Örlög hjartanna enn óráðin Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa Forsetahjónin á leið til Finnlands Benti á mikilvægi fyrirmynda þegar kæmi að jafnréttismálum Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Mæla hiklaust með lyfinu á meðgöngu ef þörf þykir á Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Vara við svikapóstum frá Ríkisskattstjóra Dularfullir drónar og umdeildar kenningar um einhverfu og parasetamól Telja sig vita hverjir grímuklæddu mennirnir eru Ferðum aflýst og einni vél snúið við vegna drónaumferðar í Kaupmannahöfn Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Aðeins helmingur telur sig við góða heilsu Rannsaka húsbrot og eldsvoða á Sauðárkróki Krefur Reykjavíkurborg um frekari svör vegna fundargerðar Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Rannsaka mál sex grímuklæddra manna sem réðust á einn Óttaslegnir eldri borgarar eftir endurtekna eldsvoða Vill frekar fjölga lögreglumönnum heldur en lögreglustöðvum Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Sjá meira