Facebook Messenger liggur niðri Kristín Ólafsdóttir skrifar 10. desember 2020 10:23 Facebook Messenger er samskiptaforrit samfélagsmiðlarisans Facebook. Vísir/Getty Samskiptaforritið Facebook Messenger virðist liggja niðri nú í morgun. Bilunin virðist einkum hrjá notendur forritsins í Evrópu, þar á meðal á Íslandi.
Notendur forritsins hafa í morgun fengið meldingu um að engin nettenging sé til staðar, þó að sú sé raunin, og ekki getað sent eða móttekið skilaboð. Ekki er ljóst hvað veldur því að Messenger liggur niðri en svo virðist sem notendur í bæði tölvum og snjalltækjum glími við vandann. Samkvæmt vefsíðunni Downdetector.com hefur tilkynningum um bilun í Messenger rignt inn á síðasta klukkutímanum, sem einmitt bendir til þess að forritið liggi víða niðri. Samkvæmt korti á síðunni berast villumeldingarnar helst frá löndum í Evrópu, auk Filippseyja. Tilkynningar hafa helst borist frá Evrópu, samkvæmt korti Downdetector. Þá hafa notendur á Twitter furðað sig á málinu í morgun, líkt og sjá má á færslunum hér fyrir neðan. Looks like Facebook messenger is down.— Thea Alberto (@TheaAlberto) December 10, 2020 https://twitter.com/angelxreys/status/1336977205490958336 Hey @Facebook #Messenger is down. pls fix xoxo— Luke Anderson (@stuntguy3000) December 10, 2020
Facebook Samfélagsmiðlar Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagur í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira