Utanríkisráðherra fer fram á endurskoðun tollasamninga við ESB Heimir Már Pétursson skrifar 17. desember 2020 19:21 Utanríkisráðherra hefur formlega óskað eftir því við Evrópusambandið að tollasamningur Íslands og sambandsins um landbúnaðarvörur verði endurskoðaður. Þá hafa Bretar og Íslendingar gert með sér nýjan loftferðasamning sem tryggir flugsamgöngur milli þjóðanna til framtíðar.
Gagnkvæmur samningur Íslands og ríkja Evrópusambandsins um inn- og útflutning landbúnaðarvara tók gildi árið 2018. Í úttekt sem gerð var á vegum utanríkisráðuneytisins og atvinnuvegaráðuneytisins kemur fram að nýting íslenskra útflytjenda á kvótum til ESB er í flestum tilfellum lítil. Grafík/HÞ Mest hefur verið nýtt af kvóta til útflutnings á lambakjöti, að mestu til Bretlands, eða 56 prósent kvótans en í öðrum vöruflokkum er nýtingin nánast engin. Á sama tíma hafa tollkvótar til innflutnings frá Evrópusambandsríkjunum allir verið fullnýttir og umtalsvert magn flutt inn utan kvóta. Til dæmis 206 prósentum meira af nautakjöti og 322 prósentum meira af ostum. Grafík/HÞ Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra vonar að viðræður við ESB geti tekið skamman tíma. „En það verður auðvitað bara að koma í ljós. Þeir þekkja hins vegar málið því þetta er ekkert nýtt. Við höfum vakið athygli á þessu og sömuleiðis því að við erum ekki með fullt tollfrelsi þegar kemur að fiskafurðum,“ segir utanríkisráðherra. Augljóslega hafi samningurinn ekki gengið eftir eins og lagt hafi verið upp með eins og tölurnar sýni. „Það eru sérstök endurskoðunarákvæði sem við teljum að eigi við út af þessum breyttu forsendum,“ segir Guðlaugur Þór. Unnið verði eftir núgildandi samningi þar til nýr náist. Utanríkisráðherra segir forsendur samnngs um inn og útflutning landbúnaðarvara milli Íslands og ESB hafa breyst.Stöð 2/Arnar „Það liggur líka fyrir að ég tel nú að margt hafi verið gott með þessum samningi. Til dæmis sem snýr að innflutningi. Að þau mál hafi komist í betri farveg eftir samninginn,“ segir Guðlaugur Þór. En utanríkisráðherra snýst í fleiru því í gær skrifaði hann undir gagnkvæman loftferðasamning við Bretland. „Það var lykilatriði að ná þessum samningi og það hefur alltaf verið forsenda að okkar hálfu að ná slíkum samningi. Sem betur fer hafa viðsemjendur okkar alveg verið sammála um það. Það er mjög mikilvægt að loftferðir milli Íslands og Bretlands séu tryggðar,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson.
Matvælaframleiðsla Evrópusambandið Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Verslun Landbúnaður Skattar og tollar Tengdar fréttir Kúabændur segja verðlækkun á innfluttu kjöti ekki hafa skilað sér til neytenda Landsamband kúabænda segir verð á innfluttu kjöti ekki hafa lækkað hér á landi frá því álögur á tollkvóta voru lækkaðar um síðustu áramót þrátt fyrir að meðalverð til innflutningsaðila hafi lækkað. 17. desember 2020 15:43 Sakar þingmenn um að taka sérhagsmuni framyfir hagsmuni neytenda Verð á innfluttum landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins mun að öllum líkindum hækka töluvert í verði upp úr áramótum vegna lagabreytinga sem verið er að ganga frá á Alþingi. Fjölmörg samtök leggjast gegn breytingunni en hún er rökstudd með stuðningi við innlendan landbúnað. 16. desember 2020 19:21 Frumvarp um aukna álagningu á innfluttar landbúnaðarvörur nýtur mikils stuðnings Frumvarp landbúnaðarráðherra um tímabunda hækkun á álögum ríkisins á innfluttar landbúnaðarvörur virðist njóta stuðnings mikils meirihluta þingmanna. Þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar lýstu sig einir andsnúna frumvarpinu við fyrstu umræðu um það í gær. 4. desember 2020 12:01 Neytendasamtökin segja ósanngjarnt að neytendur borgi stuðning við bændur Formaður Neytendasamtakanna segir ósanngjarnt að neytendur verði látnir borga stuðning við bændur með því að hækka álögur á innfluttar landbúnaðarvörur í skjóli kórónuveirufaraldursins. Nær væri að veita bændum beinan stuðning eins og örðum atvinnugreinum. 3. desember 2020 19:20 Mest lesið Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Gátu loks yfirheyrt konuna Innlent Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Innlent Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Innlent Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Innlent „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Innlent „Easy come, easy go“ Innlent Fleiri fréttir Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Gekkst undir aðgerð eftir fall í hálku og fær bætur Hátt spennustig, ruslið sem ekki er hægt að endurvinna og kvennavaka Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Írskir lögreglumenn til Íslands vegna máls Jóns Þrastar Bréfið rímar ekki við fullyrðingar Kalla Snæ Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Skúringabúnaðurinn laus af segulómtækinu en ástand þess óljóst Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Gátu loks yfirheyrt konuna Fækka hefðbundnum kennslustundum um þriðjung „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur Kvikmyndaskólinn lifir og skólagjöld verða hóflegri „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Kvenréttindadagur: „Baráttan er ekki búin“ Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Leita ekki Sigríðar í dag Um helmingur Grindvíkinga segist líklega ætla að snúa aftur Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu „Easy come, easy go“ Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Áframhaldandi landris í Svartsengi Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Sjá meira
Kúabændur segja verðlækkun á innfluttu kjöti ekki hafa skilað sér til neytenda Landsamband kúabænda segir verð á innfluttu kjöti ekki hafa lækkað hér á landi frá því álögur á tollkvóta voru lækkaðar um síðustu áramót þrátt fyrir að meðalverð til innflutningsaðila hafi lækkað. 17. desember 2020 15:43
Sakar þingmenn um að taka sérhagsmuni framyfir hagsmuni neytenda Verð á innfluttum landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins mun að öllum líkindum hækka töluvert í verði upp úr áramótum vegna lagabreytinga sem verið er að ganga frá á Alþingi. Fjölmörg samtök leggjast gegn breytingunni en hún er rökstudd með stuðningi við innlendan landbúnað. 16. desember 2020 19:21
Frumvarp um aukna álagningu á innfluttar landbúnaðarvörur nýtur mikils stuðnings Frumvarp landbúnaðarráðherra um tímabunda hækkun á álögum ríkisins á innfluttar landbúnaðarvörur virðist njóta stuðnings mikils meirihluta þingmanna. Þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar lýstu sig einir andsnúna frumvarpinu við fyrstu umræðu um það í gær. 4. desember 2020 12:01
Neytendasamtökin segja ósanngjarnt að neytendur borgi stuðning við bændur Formaður Neytendasamtakanna segir ósanngjarnt að neytendur verði látnir borga stuðning við bændur með því að hækka álögur á innfluttar landbúnaðarvörur í skjóli kórónuveirufaraldursins. Nær væri að veita bændum beinan stuðning eins og örðum atvinnugreinum. 3. desember 2020 19:20