Petter Northug dæmdur í sjö mánaða fangelsi Atli Ísleifsson skrifar 21. desember 2020 13:19 Petter Northug lagði skíðin á hilluna árið 2018. Getty Dómstóll í Noregi dæmdi í dag gönguskíðakappann Petter Northug í sjö mánaða óskilorðsbundið fangelsi og ævilanga ökuleyfissviptingu fyrir ofsaakstur og vörslu fíkniefna.
Northug er ofurstjarna í Noregi og einn sigursælasti íþróttamaðurinn í sögu gönguskíðaíþróttarinnar með fjölda Ólympíuverðlauna og heimsmeistaratitla á ferilskránni. Northug var meðal annars dæmdur fyrir ofsaakstur í fjórgang í ágúst síðastliðinn. Hraðast ók hann þann 12. ágúst síðastliðinn, á 204 kílómetra hraða á vegi þar sem er 80 kílómetra hámarkshraði. Hann á einnig að hafa tekið aksturinn upp á síma og ekið á öfugri akrein. Hann var einnig dæmdur fyrir vörslu fíkniefna sem fundust á heimili hans – sex grömm af kókaíni, 0,6 grömm af MDMA, þrjár töflur af Diazepam og tvær töflur af Alprazolam. Hinn 34 ára Northug greindi frá brotunum og glímu sína við fíkniefnadjöfulinn á blaðamannafundi 21. ágúst. Sagðist hann hafa verið edrú síðan hann var tekinn af lögreglu, og að sögn dómarans í dag er Northug það enn. Northug var árið 2014 dæmdur í fimmtíu daga fangelsi og greiðslu 185 þúsund norskra króna fyrir ölvunarakstur. Hann afplánaði þann dóm með ökklaband. Dómarinn segir að fyrri brot Northug hafi leitt til refsiþyngingar nú. Northug lagði skíðin á hilluna árið 2018.
Noregur Skíðaíþróttir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira