Hafa enn ekki staðfest smit en grípa þó til aðgerða Samúel Karl Ólason skrifar 19. mars 2020 15:55 Ríkisstjórn Kim dreifði þessari mynd á þriðjudaginn og segja kim hafa haldið ræðu vegna byggingar nýs sjúkrahús. Fjölmiðlar hafa þó ekki getað staðfest hvort það sé satt. Áður hafði Kim ekki sést opinberlega í nokkrar vikur. AP/KCNA
Yfirvöld Norður-Kóreu hafa meinað fólki sem ekki ber grímur að notast við almenningssamgöngur. Einræðisríkið hefur ekki staðfest útbreiðslu nýju kórónuveirunnar þar en óttast er að verið sé að hylma yfir faraldur sem gæti farið úr böndunum. Norður-Kórea er á milli Kína og Suður-Kóreu. Í Kína hafa minnst 80 þúsund smitast og rúmlega þrjú þúsund dáið. Í Suður-Kóreu hafa minnst átta þúsund smitast og um 80 dáið. Vannæring hefur lengi verið mikil í Norður-Kóreu og því er óttast að veiran gæti komið verr niður á íbúum þar en annars staðar. Fregnir hafa borist af því að þúsundir séu undir eftirlit í Norður-Kóreu vegna veikinda og gripið hefur verið til ýmissa aðgerða sem eiga að koma í veg fyrir faraldur. Yonhap fréttaveitan frá Suður-Kóreu segir ríkisstjórn Kom Jong Un hafa lokað landamærum ríkisins og Kína og hafa leik- og grunnskólar ekki verið opnaðir eftir frí sem átti að ljúka um miðjan febrúar. Einnig er hitastig allra sem notast við almenningssamgöngur kannað og þeim er gert að vera með grímu og hanska. Sérfræðingur sem Yahoo News í Ástralíu ræddi við sagði líkurnar á því að nýja kórónuveiran hafi dreifst til Norður-Kóreu vera miklar. Töluverð viðskipti eigi sér stað yfir landamæri einræðisríkjanna Norður-Kóreu og Kína og fregnir hafi borist af því að töluverður fjöldi hermanna hafi dáið. Vísar hann til þess að Kim hafi ekki sést á almannafæri í margar vikur. Að miklu leyti er eingöngu um vangaveltur að ræða.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Norður-Kórea Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira