Smitaðir nálgast 1.100 talsins en nýjum smitum fækkar annan daginn í röð Kjartan Kjartansson skrifar 30. mars 2020 13:01 Skimun fyrir kórónaveirunni hjá Heilsugæslunni Höfða. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm
Staðfest smit nýs afbrigðis kórónuveiru sem veldur COVID-19-sjúkdómnum eru nú alls 1.086 hér á landi. Þeim hefur fjölgað um 66 frá því að síðustu tölur birtust á covid.is klukkan eitt í gær en nýjum smitum fækkar annan daginn í röð. Á síðunni kemur einnig fram að tuttugu og fimm séu á sjúkrahúsi vegna veirunnar, þar af níu á gjörgæslu. Alls eru 9.531 í sóttkví og 945 í einangrun. Þá hafa 4.796 manns lokið sóttkví. Sýni hafa verið tekin úr 15.484. Klukkan tvö verður, líkt og síðustu daga, haldinn upplýsingafundur almannavarna, landlæknis og sóttvarnalæknis þar sem farið verður yfir stöðu þeirra mála sem tengjast faraldri kórónuveirunnar og aðgerðum til þess að sporna við útbreiðslu. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi. Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, verður gestur fundarins í dag og mun hún ræða þau fjölmörgu og flóknu verkefni sem Rauði krossinn sinnir í tengslum við COVID-19. Upplýsingafundurinn verður í beinni útsendingu og textalýsingu á Vísi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Ríkið hvetur til nýliðunar en útilokar fólk eftir fertugt Innlent Fleiri fréttir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Sjá meira