Patrik skiptir um lið í toppbaráttunni Sindri Sverrisson skrifar 5. janúar 2021 13:46 Patrik Gunnarsson fagnar í leiknum við Íra með U21-landsliðinu, en sigur í þeim leik kom Íslandi í lokakeppni EM. Getty/Harry Murphy Patrik Gunnarsson mun verja mark Silkeborg í Danmörku á því spennandi vori sem framundan er hjá U21-landsliðsmarkmanninum.
Patrik er leikmaður Brentford á Englandi en var að láni hjá Viborg í haust og á sinn þátt í því að Viborg er á toppi dönsku 1. deildarinnar. Hann fékk aðeins 9 mörk á sig í 12 leikjum með liðinu. Lánsdvölinni hjá Viborg lauk um áramót en forráðamenn Silkeborg, sem einnig leikur í 1. deild Danmerkur, voru þá fljótir til að fá Patrik að láni, eftir að hafa tapað báðum leikjum sínum gegn Patrik og liði Viborg í haust. Hjá Silkeborg verður Patrik liðsfélagi Stefáns Teits Þórðarsonar. Patrik kveðst í samtali við heimasíðu Silkeborg vonast til að geta hjálpað liðinu að komast upp í úrvalsdeild en liðið er í 3. sæti með 31 stig, sjö stigum á eftir Viborg og Esbjerg. Patrik, sem hefur verið viðloðandi A-landslið Íslands, var aðalmarkmaður U21-landsliðsins sem tryggði sér sæti í lokakeppni EM í fyrra. Hann verður því væntanlega í liðinu sem mætir Rússlandi, Danmörku og Frakklandi dagana 25.-31. mars, í fyrri hluta lokakeppninnar. Patrik er tvítugur og uppalinn hjá Breiðabliki. Hann fór frá Blikum til Brentford sumarið 2018 og hefur leikið einn deildarleik fyrir félagið, en farið að láni til Southend United, Viborg og nú Silkeborg.
Danski boltinn Tengdar fréttir Segir að Patrik verði samherji Stefáns í Danmörku Lasse Vøge, blaðamaður BT, greinir frá því að danska B-deildarfélagið Silkeborg sé að klófesta Patrik Sigurð Gunnarsson frá Brentford. 30. desember 2020 20:49 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Sjá meira
Segir að Patrik verði samherji Stefáns í Danmörku Lasse Vøge, blaðamaður BT, greinir frá því að danska B-deildarfélagið Silkeborg sé að klófesta Patrik Sigurð Gunnarsson frá Brentford. 30. desember 2020 20:49