Skuldir Barcelona nálgast milljarð evra Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. janúar 2021 16:30 Gengi Barcelona inni á vellinum hefur batnað undanfarnar vikur en utan vallar er allt í steik. getty/Fermin Rodriguez Spænska stórveldið Barcelona er stórskuldugt en talið er að skuldir þess nálgist einn milljarð evra. Félagið þarf að borga næstum því helming þess innan árs. Kórónuveirufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á fjárhagsstöðu Barcelona og vonir forráðamanna félagsins um að fá milljarð evra í tekjur urðu að engu. Samkvæmt katalónska dagblaðinu La Vanguardia nálgast skuldir Barcelona hins vegar milljarð evra. Félagið þarf að greiða 420 milljónir evra á næstu tólf mánuðum. Börsungar sitja í skuldasúpu þrátt fyrir að allir leikmenn félagsins hafi tekið á sig verulega launalækkun á síðasta tímabili. Þrátt fyrir það eyðir ekkert félag í heiminum jafn háum upphæðum í laun og Barcelona. Þá er ekki ljóst hvort Barcelona geti endurnýjað samninga við sína stærstu styrktaraðila, Rakuten og Beko. Forsetakosningar eru framundan hjá Barcelona og sigurvegara þeirra bíður væntanlega blóðugur niðurskurður. Joan Laporta, fyrrverandi forseti Barcelona, þykir líklegastur til að standa uppi sem sigurvegari í kosningunum.
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á fjárhagsstöðu Barcelona og vonir forráðamanna félagsins um að fá milljarð evra í tekjur urðu að engu. Samkvæmt katalónska dagblaðinu La Vanguardia nálgast skuldir Barcelona hins vegar milljarð evra. Félagið þarf að greiða 420 milljónir evra á næstu tólf mánuðum. Börsungar sitja í skuldasúpu þrátt fyrir að allir leikmenn félagsins hafi tekið á sig verulega launalækkun á síðasta tímabili. Þrátt fyrir það eyðir ekkert félag í heiminum jafn háum upphæðum í laun og Barcelona. Þá er ekki ljóst hvort Barcelona geti endurnýjað samninga við sína stærstu styrktaraðila, Rakuten og Beko. Forsetakosningar eru framundan hjá Barcelona og sigurvegara þeirra bíður væntanlega blóðugur niðurskurður. Joan Laporta, fyrrverandi forseti Barcelona, þykir líklegastur til að standa uppi sem sigurvegari í kosningunum. Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Spænski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Sjá meira