Sigldu í Strand í St. Gallen Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. janúar 2021 10:32 Kjetil Strand reynir að stöðva Guðjón Val Sigurðsson í frægum leik Noregs og Íslands á EM 2006. epa/REGINA KUEHNE Ísland mætir Noregi í þriðja og síðasta leik sínum í milliriðli III á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi í dag. Þetta er jafnframt lokaleikur Íslendinga á HM. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Ísland og Noregur hafa átta sinnum mæst á stórmótum og er tölfræðin Íslendingum í hag. Ísland hefur unnið sex leiki og Noregur tvo. Hér fyrir neðan má lesa um fjóra eftirminnilega leiki Íslands og Noregs á stórmótum. Ísland 32-28 Noregur, HM 1997 Ótrúlegt en satt mættust Ísland og Noregur ekki á stórmóti fyrr en 1997, í sextán liða úrslitum á HM í Kumamoto. Ísland var tveimur mörkum undir eftir fyrri hálfleikinn, 13-15, en náði undirtökunum um miðjan seinni hálfleik og landaði fjögurra marka sigri, 32-28. Róbert Julian Duranona, sem var á sínu fyrsta stórmóti, lék einn sinn besta landsleik og skoraði sex mörk. Eftir leikinn sagði norskur fréttamaður, sem lýsti leiknum á TV 2, að Norðmenn hefðu tapað fyrir Kúbumanni en ekki Íslendingum. Ísland endaði að lokum í 5. sæti á HM 1997 sem er enn besti árangur Íslands á heimsmeistaramóti. Mörk Íslands: Geir Sveinsson 7, Róbert Julian Duranona 7, Patrekur Jóhannesson 6, Valdimar Grímsson 5/1, Gústaf Bjarnason 4, Ólafur Stefánsson 3, Dagur Sigurðsson 1. Ísland 33-36 Noregur, EM 2006 Því miður er erfitt að gleyma frammistöðu Norðmannsins Kjetils Strand gegn Íslandi í milliriðli á EM 2006 í Sviss. Strand leit út eins og besti leikmaður heims í leiknum og skoraði hvorki fleiri né færri en nítján mörk. Aldrei hefur leikmaður norska landsliðsins skorað jafn mörg mörk í einum og sama leiknum. Strand skoraði meðal annars níu af fyrstu ellefu mörkum Noregs. Mörkin nítján skoraði Strand þrátt fyrir að vera rétthent skytta sem spilaði hægra megin fyrir utan. Það breytti engu og hann skoraði nánast úr hverju einasta skoti sem hann tók. Ísland var yfir í hálfleik, 16-14, en bensínið var búið undir lokin enda hafði íslenska liðið orðið fyrir miklum skakkaföllum á EM. Noregur vann að lokum með þriggja marka mun, 33-36. Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 9/4, Guðjón Valur Sigurðsson 6, Róbert Gunnarsson 5, Snorri Steinn Guðjónsson 5, Ásgeir Örn Hallgrímsson 4, Sigfús Sigurðsson 2, Heimir Örn Árnason 1, Arnór Atlason 1. Ísland 29-22 Noregur, HM 2011 Ísland kláraði fullkomna riðlakeppni á HM 2011 í Svíþjóð með því að vinna Noreg með sjö marka mun, 29-22. Mikil harka var í leiknum og jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik. Staðan að honum loknum var jöfn, 12-12. Í seinni hálfleiknum skelltu Íslendingar í lás í vörninni og héldu Norðmönnum í aðeins tíu mörkum. Björgvin Páll Gústavsson átti einn sinn besta landsleik og varði helming þeirra skot sem hann fékk á sig. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sjö mörk og Alexander Petersson fimm en sá síðarnefndi var valinn í úrvalslið mótsins. Því miður reyndist þetta síðasti sigur Íslands á HM 2011 og niðurstaðan varð 6. sæti sem er samt næstbesti árangur íslenska liðsins á heimsmeistaramóti. Mörk Íslands: Snorri Steinn Guðjónsson 7/3, Alexander Petersson 5, Aron Pálmarsson 4, Þórir Ólafsson 3/1, Guðjón Valur Sigurðsson 3, Ólafur Stefánsson 3, Róbert Gunnarsson 2, Ingimundur Ingimundarson 1, Arnór Atlason 1. Ísland 31-26 Noregur, EM 2014 Á síðasta virkilega góða stórmóti Íslendinga, EM 2014, unnu þeir Norðmenn með fimm marka mun í fyrsta leik sínum í A-riðli, 31-26. Þetta var fjórði sigur Íslands á Noregi á stórmóti í röð. Guðjón Valur Sigurðsson fór mikinn í leiknum og skoraði níu mörk. Hann var næstmarkahæsti leikmaður EM 2014 og valinn í úrvalslið mótsins. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði sex mörk eftir erfiða byrjun en EM var hans besta stórmót á ferlinum. Íslendingar lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik þar sem þeir skoruðu sextán mörk gegn tíu þrátt fyrir að Aron Pálmarsson hafi meiðst snemma leiks. Norðmenn náðu aldrei að minnka muninn í minna en þrjú mörk í seinni hálfleik og sigur Íslendinga var aldrei í hættu. Ísland endaði að lokum í 5. sæti á EM 2014 eftir sigur á Póllandi, 28-27, í lokaleik sínum á mótinu. Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 9/2, Ásgeir Örn Hallgrímsson 6, Rúnar Kárason 4, Arnór Atlason 3, Þórir Ólafsson 3, Snorri Steinn Guðjónsson 3/2, Aron Pálmarsson 2, Vignir Svavarsson 1.
HM 2021 í handbolta Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira