Pfizer farið að rukka fyrir sjötta skammtinn Atli Ísleifsson skrifar 26. janúar 2021 11:34 Bólusetning með bóluefni Pfizer hófst á Íslandi þann 29. desember. EPA Eftir að fram kom að hægt er að ná sex bóluefnaskömmtum út úr flöskum Pfizer í stað fimm, er bandaríski lyfjaframleiðandinn nú farinn að rukka fyrir sjötta skammtinn. Hærri reikningar Pfizer eru þó sendir út án samþykkis frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Sænska blaðið Dagens Nyheter segir frá þessu. Flöskur Pfizer hafa til þessa verið fylltar með efni þannig að öruggt sé að hægt sé að blanda úr því rúmlega fimm skammta. Í ljós hefur komið að ef notast er við ákveðna gerð nála er hins vegar hægt að ná nægu magni úr flöskunum til að tryggja sjötta skammtinn. Richard Bergström, sem á sæti í samninganefnd framkvæmdastjórnar ESB og hefur umsjón með dreifingu bóluefna frá Svíþjóð til Íslands og Noregs, segir í samtali við DN, að hærri reikningar frá Pfizer séu óásættanlegir. „Ef land er bara með möguleika á að ná fimm skömmtum, hafa fengist færri skammtar fyrir sama verð.“ Anders Tegnell, sóttvarnalæknir Svíþjóðar, segir að Lýðheilsustofnun Svíþjóðar muni nú ekki greiða reikningana frá Pfizer fyrr en samkomulag hefur náðst í deilunni. SVT hefur ekki náð í fulltrúa Pfizer vegna málsins. Bólusetning með bóluefni Pfizer hófst á Íslandi þann 29. desember. Íslensk stjórnvöld hafa náð samningum við Pfizer um 250 þúsund skammta sem duga fyrir um 125 þúsund einstaklinga.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Svíþjóð Evrópusambandið Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira