Dagur í sigti Löwen sem vill ekki lenda í því sama og með Kristján Sindri Sverrisson skrifar 5. febrúar 2021 08:30 Dagur Sigurðsson var að klára HM með Japan þar sem liðið gerði flotta hluti, náði til að mynda jafntefli við Króatíu, og komst í milliriðlakeppni. Getty/Slavko Midzor Dagur Sigurðsson er einn þriggja þjálfara sem forráðamenn Rhein-Neckar Löwen telja helst koma til greina til að taka við liðinu í sumar.
Þessu greinir staðarmiðillinn Mannheimer Morgen frá. Þar segir að Dagur, sem þjálfar japanska landsliðið, norski landsliðsþjálfarinn Christian Berge og Sebastian Hinze séu þeir sem Löwen sé með í sigtinu. Hinze hefur stýrt Bergischer frá árinu 2012. MM nefnir að vegna slæmrar reynslu af því að hafa þjálfara sem ekki talaði þýsku, þegar félagið var með Kristján Andrésson í starfi, sé það skilyrði að nýr þjálfari tali reiprennandi þýsku. Það á við um Þjóðverjann Hinze sem og Dag og Berge. Martin Schwalb er núverandi þjálfari Löwen en hættir í lok leiktíðar. Sú ákvörðun hans mun vera nokkuð óvænt. Samkvæmt MM er leit Löwen að nýjum þjálfara því ekki langt komin. Félagið vill helst ekki þurfa að borga upp samning til að losa þjálfara. Forráðamenn Löwen munu ekki vera hrifnir af því að ráða þjálfara sem samhliða stýrir landsliði, en það kemur þó til greina í tilviki Dags og Berge. Samningur Dags um að þjálfa japanska landsliðið, sem verður á heimavelli á ÓL í Tókýó í sumar, gildir fram til ársins 2024. Samningsstaða Hinze hjá Bergischer er ekki ljós. MM nefnir að hann sé 41 árs og gæti því verið sá ungi þjálfari sem fólkið í Löwen vilji fá, eins og þegar Nikolaj Jacobsen þjálfari heimsmeistara Dana var ráðinn.
Þýski handboltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Íslendingarnir í miklum ham fyrir EM Handarbrotinn og missir af úrslitaleiknum Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Sjá meira