Tuchel sótti þrjú stig á Bramall Lane 7. febrúar 2021 21:08 Sigri fagnað vísir/Getty Chelsea vann þriðja leik sinn í röð undir stjórn Thomas Tuchel þegar liðið heimsótti botnlið Sheffield United í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Mason Mount þakkaði traustið og kom gestunum í 0-1 forystu á markamínútunni frægu, þeirri fertugustu og þriðju og fór Chelsea því með eins marks forystu í leikhléið. Þýski varnarmaðurinn Antonio Rudiger jafnaði metin fyrir Sheffield United þegar hann varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 54.mínútu. Jorginho var fljótur að ná forystunni aftur fyrir Chelsea því hann skoraði úr vítaspyrnu á 58.mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og naumur sigur Chelsea staðreynd. Enski boltinn
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti