Telur mögulega ekki þörf á grímum í sumar Kristín Ólafsdóttir skrifar 24. febrúar 2021 23:26 Lundúnabúar með grímur fyrir vitum í Mark & Spencer í janúar. Getty/SOPA Images Mögulegt er að grímuskylda verði afnumin innandyra í Bretlandi yfir sumarmánuðina. Þetta kom fram í máli Jenny Harries, eins helsta heilbrigðismálaráðgjafa breskra stjórnvalda, á blaðamannafundi vegna kórónuveirufaraldursins í Bretlandi í dag.
Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands hefur boðað að takmarkanir vegna veirunnar verði með öllu afnumdar í Bretlandi í fyrsta lagi 21. júní næstkomandi. Harries var innt eftir því á blaðamannafundinum í dag hvort Bretar yrðu enn skyldaðir til að bera grímur innandyra á almannafæri eftir þann tíma. Hún sagði að sú yrði ekki endilega raunin – en grímur yrðu ef til vill skylda þegar veturinn gengur í garð. „Eitt af því sem við vitum er, að sjálfsögðu, að það er mun öruggara að athafna sig utandyra en innandyra. Loftræsting, við vitum að hún er mjög mikilvæg. […] En það er mögulegt að yfir sumarmánuðina, líkt og í fyrra þegar smitum fækkaði, þurfum við ekki að bera grímur. Sumarið er almennt mun öruggara fyrir okkur og minni þörf á inngripi. En það útilokar hana [grímuskyldu] ekki þegar veturinn hefst á ný,“ sagði Harries.
Bretland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira