Framhaldskólaleikarnir í beinni: Rocket League Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. mars 2021 18:55 Kristján Einar Kristjánsson og Donna Cruz lýsa keppni framhaldsskólanna í Rocket League leiknum í kvöld kl. 19. Samsett/Hulda/Vilhelm/Rocket League Átta framhaldsskólar munu keppa í kvöld í beinni útsendingu í tölvuleiknum Rocket League á öðru útsendingarkvöldi Framhaldsskólaleikanna í rafíþróttum.
Leikkonan Donna Cruz mun lýsa því sem fyrir augu ber á Stöð 2 eSport ásamt Kristjáni Einari Kristjánssyni. Sjá má leiki kvöldsins í spilaranum hér að neðan en útsendingin hefst klukkan 19.00 og stendur til 21.00. Leikir kvöldsins: Framhaldsskólinn á Laugum – Menntaskólinn á Tröllaskaga Kvennaskólinn í Reykjavík – Tækniskólinn Menntaskólinn í Reykjavík – Menntaskólinn á Egilsstöðum Menntaskólinn á Ásbrú – Verzlunarskóli Íslands Á Framhaldsskólaleikunum er keppt í þremur leikjum; Counter-Strike, Rocket League og FIFA. Fjórtán skólar eru skráðir til keppni og er þeim skipt í tvo riðla í hverjum leik. Tvö lið komast upp úr hvorum riðli og spila um sæti, og fást 10 stig fyrir efsta sætið í hverjum tölvuleikjanna þriggja, átta stig fyrir 2. sætið, og svo færri stig eftir því sem lið enda neðar. Mest geta fulltrúar skólanna því fengið 30 stig, eða reyndar 35 stig ef þeir klára fimm samfélagsmiðlaáskoranir sem fela í sér heilbrigðan lífsstíl. Fjórir efstu skólarnir í heildarstigatöflunni komast í undanúrslit og bítast um meistaratitilinn. Aukastig fást fyrir að birta myndir af keppendum á samfélagsmiðlum að sinna heilbrigðum lífsstíl. Í kvöld eru eins og fyrr segir fjórir leikir á dagskrá í Rocket League og verðar þeir í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi. Í Rocket League er keppni skammt á veg komin en MH, Kvennaskólinn og Tækniskólinn hafa þó unnið tvo leiki hvert. Hægt er að horfa á útsendingu kvöldsins í spilaranum hér fyrir neðan.
Rafíþróttir Framhaldsskólaleikarnir Mest lesið Kjartan Atli lætur af störfum Körfubolti „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Enski boltinn Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Enski boltinn Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Körfubolti Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Íslenski boltinn