Notaður bolli seldist á 1,7 milljónir Snorri Másson skrifar 25. apríl 2021 21:59 Bollinn dýri er samstarfsverkefni Fazer og Arabia frá 2004. Aðeins 400 eintök voru framleidd. Arabia Kona búsett í Stafangri rataði í fjölmiðla í Noregi á dögunum fyrir sögulega hátt verð sem hún fékk fyrir Múmínbolla sem hún var að selja frá sér. Engin furða, enda var verðið lyginni líkast: Hún fékk 110.000 norskar krónur fyrir þennan eina staka bolla, andvirði 1.650.000 króna. „
Ég er mjög ánægð. En ég þurfti að klípa mig aðeins. Kaupandinn hlýtur síðan að hafa keyrt sérstaklega varlega heim,“ segir seljandinn við NRK, Åsne Marie Sande að nafni. Bollinn sem um ræðir er sérútgáfa sem finnski framleiðandinn Arabia gerði í samstarfi við súkkulaðigerðina Fazer árið 2004. Sande keypti bollann á 85.000 norskar krónur árið 2017 en er nú að selja allt Múmínsafnið sitt. Safn Sande telur fleiri tugi bolla og ólík módel af bollunum eru þegar orðin fleiri en 100. Sum eru sérstaklega sjaldgæf og verða því rándýr á markaðnum, en umrætt eintak mun vera eitt það allra dýrasta sem hefur selst. Sande útskýrir fyrir blaðamanni norska útvarpsins að ástæðan fyrir því að Múmínbollar séu farnir frá því að vera fylgihlutir með barnaefni frá 9. áratugnum yfir í að vera eftirsótt markaðsvera sé í grunninn aðallega sú að þeir eru bara svo sætir. Síðan geti söfnunin vissulega orðið að áráttu með tímanum. Rétt eins og Norðmenn, eru Íslendingar margir virkir Múmínsafnarar og til er sérstakur félagsskapur á Facebook sem heldur utan um það áhugamál. Þar eru meðlimirnir fleiri en 9.000 og fjöldi færslna á dag þar sem bollarnir vinsælu ganga kaupum og sölum.
Noregur Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagur í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira