Ég elska appelsínur en hata ekki banana Friðrik Agni Árnason skrifar 27. apríl 2021 16:00 Stundum eru orð ekki nóg. Hafið þið ekki heyrt þetta sagt? Oft notað þegar á að lýsa einhverjum tilfinningum og orðin ein virðast ekki vera nóg til þess. Hvað er átt við? Þú skynjar ekki tilfinningalegan ásetning á bak við orðin nema þú sért mjög góður í að hlusta og skilja raddblæ fólks, skoða andlitssvipi og líkamsbeitingu. Þetta er erfitt að gera þegar maður er með manneskju fyrir framan sig. Það er samt hægt að æfa það og ef þú hefur manneskju standandi fyrir framan þig þá getur þú spurt nánar um það sem hún segir og fylgst með líkamlegum viðbrögðum. Hinsvegar þegar þú hefur einungis skrifuð orð og engin leið að vita hvað liggur að baki þá er mjög erfitt að vita upp á hár tilfinningalega vægið eða merkingu orðanna - Nema orðin séu ótrúlega bókstafleg. Flestir skrifa samt ekki þannig nema í skýrslugerðum eða rannsóknarniðurstöðum þegar um svart/hvítar staðreyndir er að ræða. Skrif nú til dags eru að miklu leyti á samfélagsmiðlum, fréttamiðlum, kommentakerfum og öðrum efnisveitum og eru mjög oft tilfinninga- og skoðanahlaðin. Þetta verður svo ennþá erfiðara í túlkun þegar fólk þekkir ekki þann sem skrifar orðin. Af þessum ástæðum spretta oft tuð og rifrildaflækjur, vanlíðan, egóvarnarveggir og biturleiki á internetinu (kommentakerfið). Of oft (ef ekki alltaf) af ástæðulausu. Þar sem allir hafa í raun alltaf rangt fyrir sér. Ég reyni oftast að passa mig á að skrifa þannig að ég varpa fram hugleiðingum mínum. Því oftast skrifa ég um hluti sem ég er að velta fyrir mér og hendi spurningum út í kosmósið. Ég skrifa út frá eigin reynslu, þekkingu og hugarflugi. Ég hef ekki rétt fyrir mér. En það er þetta með að gera grein fyrir einhverri skoðun með skrifuðum hætti sem svo er mistúlkuð án frekari spurninga og sú mistúlkun verður allt í einu uppspretta einhverskonar misskilnings. Jafnvel mjög alvarlegum misskilningi. Hann verður jafnvel einhverskonar skilmisingur eins og góð vinkona segir oft. T.d. ef ég skrifa: Ég elska appelsínur. Þær bragðast svo vel! Þá er einhver sem svarar: Bíddu hatar þú þá banana? Hvað er að bönunum? En það er einmitt þetta. Þó ég skrifi aldrei að ég hati banana að þá einungis með því að greina sérstaklega frá því hve mikið ég elska appelsínur er sú ályktun dregin að ég elski ekki banana. Eða liggur við hvað sem er annað sem er ekki appelsína. Þessi elskar BARA appelsínur og mun aldrei elska banana. Það er eins og við viljum sjálfkrafa fara í mjög sjálfhverfa túlkun á því sem aðrir skrifa og segja. Eins og allt sem skrifað er af öðrum taki mið af því að reyna ráðast persónulega gegn okkur sjálfum. Ég þekki þetta frá báðum hliðum og sennilega flestir. Ég skrifa því mér finnst það skemmtilegt og góð leið til að losna við pælingar í hausnum. Ég sleppi þeim út á opinbera miðla í þeirri von að einhverjir tengi við pælingarnar og kannski geta þær orðið að gagni. Eða þá til að taka þátt í skemmtilegum samræðum um viðfangsefnið. Stundum er hins vegar eins og textinn sem er skrifaður hitti akkúrat í egóið á fólki og þá er oftast ekki aftur snúið. Maður er orðinn grillað kjöt. Ég hef séð það gerast hjá mér sjálfum og séð aðra fara inn í steikjandi eldofninn fyrir mistúlkaðar greinar. Það sem gerist samt of oft er að brot úr texta hittir egóið og þá klárar fólk ekki að lesa allan textann sem var skrifaður. Oft eru nefnilega notaðar andstæður í greinaskrifum þar sem varpað er fram hugleiðingu eða spurningu sem svo breytist í gagnstæða hugleiðingu í lokin. Í sumum tilfellum deilir fólk jafnvel grein með viðbættum skoðunum alveg þvert á sem stendur í greininni og er ótrúlega heitt í hamsi en svo kemur í ljós að einungis fyrirsögnin var lesin. Það er aldrei góð hugmynd og kemur frekar kjánalega út. Ég gerði einu sinni þau mistök að lesa aðeins brot, deila áfram og lærði svo sannarlega af því og mun aldrei falla í þá gryfju aftur. Eins og dæmið að ofan með bananann. Einhver sem elskar banana út af öllu lífinu les Ég elska appelsínur og hann tekur þetta nærri sér því hann elskar banana en hatar appelsínur, þær eru of súrar. Hann hugsar: Af hverju tekur hann ekki banana inn í dæmið? Er eitthvað að mér þá fyrir að elska banana? Stundum er hægt að ná fólki niður og benda vinsamlega á að hvergi í textanum standi að ég hati banana. Það kemur hreinlega ekkert fram um banana. Það er því miður oft um seinan. Þegar egóið er orðið sært þá er svo erfitt að hafa sjálfsstjórn. Ég tek samt bara áhættuna og skrifa um það sem ég er að pæla í. Sumir tengja, sumir eru sammála aðrir ekki. Sumir triggerast. Aðrir ekki. Ég einn get ekki stöðvað mistúlkun á netinu. Nema ég myndi bjóða öllum heim til mín í saumó og jafnvel þá verða mistúlkanir. Ég biðla hins vegar til sjálfs míns og annarra um að lesa vel og ígrundað og ef við ætlum að svara eða deila einhverjum skrifum gerum það þá vandað. Þá á ég ekki við um að við þurfum að vera sammála þeim sem skrifar en komum með raunverulegt svar sem á við um það sem var skrifað. Við skulum ekki vera týpan sem berst fyrir bananaást undir grein sem fjallar um ást á appelsínum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Friðrik Agni Árnason Mest lesið Ég veit hvern ég styð Elliði Vignisson Skoðun Af hverju endurbætt Suðurlandsbraut? Atli Björn Levy Skoðun Það er gott að... í Kópavogi Halldór Benjamín Þorbergsson Skoðun Báknið minnkað, Miðflokkur á móti Sverrir Páll Einarsson Skoðun Opið bréf til stjórnar Háskólans á Bifröst Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Toyotan, sviðasultan & kötturinn Árni Stefán Árnason Skoðun Er Borgarlínan metnaðarfull framtíðarsýn eða tálsýn? Kristín Thoroddsen Skoðun Offita er ekki tilviljun – hún er kerfisvandi Elísabet Reynisdóttir Skoðun Banaslys á sjúkrahúsum: reynsla sem þarf að læra af Gunnar Salvarsson Skoðun Barnavernd á Íslandi fyrr og nú Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Eyðimerkurganga Félags fósturforeldra Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun Birtan af Myrkum músíkdögum Ásmundur Jónsson,Björg Brjánsdóttir,Gunnhildur Einarsdóttir,Þráinn Hjálmarsson skrifar Skoðun Hvergi meiri ánægja með þjónustu við börn og barnafólk Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Oddviti í úrvalsdeild Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Umhverfisráðherra gleymir lýðheilsu Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Verðbólgan kemur aftur og aftur eins og illskeytt krabbamein – stjórnvöld ráðþrota Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Það er gott að... í Kópavogi Halldór Benjamín Þorbergsson skrifar Skoðun Hvað verður um hugmyndafræði leikskólans? Sara Margrét Ólafsdóttir,Bryndís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Báknið minnkað, Miðflokkur á móti Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnar Háskólans á Bifröst Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Barnavernd á Íslandi fyrr og nú Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Banaslys á sjúkrahúsum: reynsla sem þarf að læra af Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Heilbrigðisþjónusta fyrir sum Telma Sigtryggsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Offita er ekki tilviljun – hún er kerfisvandi Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Er Borgarlínan metnaðarfull framtíðarsýn eða tálsýn? Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Toyotan, sviðasultan & kötturinn Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Ég veit hvern ég styð Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvað getur frístundaheimili gert fyrir barnið þitt? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Aðgerðarleysi er ákvörðun, hún bitnar á börnunum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Af hverju endurbætt Suðurlandsbraut? Atli Björn Levy skrifar Skoðun Frelsið til að skipta um skoðun Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Að byggja upp samfélag Pétur Björgvin Sveinsson skrifar Skoðun Samstaða um varnarmál Pawel Bartoszek,Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Frítt í Strætó fyrir börn og ungmenni - ólíkt hafast menn að Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fordæmdu börnin Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Íslensk lög sniðin að þörfum norsku laxeldisrisanna Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Fossvogur án íþrótta – afleiðingar Fossvogsbrúar Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun X - Orri Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Viltu nýja brú eða nýtt hné? Ódýrt lýðskrum gegn loftslagsaðgerðum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu Sandra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Birtan af Myrkum músíkdögum Ásmundur Jónsson,Björg Brjánsdóttir,Gunnhildur Einarsdóttir,Þráinn Hjálmarsson skrifar
Skoðun Verðbólgan kemur aftur og aftur eins og illskeytt krabbamein – stjórnvöld ráðþrota Vilhelm Jónsson skrifar
Skoðun Hvað verður um hugmyndafræði leikskólans? Sara Margrét Ólafsdóttir,Bryndís Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðgerðarleysi er ákvörðun, hún bitnar á börnunum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Viltu nýja brú eða nýtt hné? Ódýrt lýðskrum gegn loftslagsaðgerðum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar