Fjölmiðlafyrirtæki virðir ekki höfundarétt Matthías Freyr Matthíasson skrifar 15. maí 2021 13:01 Fyrir tæpum hálfum mánuði síðan sá ég umræður á internetinu, þar sem var verið að ræða um hversu miklu betra það er að tækla vandamálin, þegar maður er kominn í öngstræti og sér ekki lausnir úr þeim vandamálum sem maður upplifir og grefur hausinn lengra í sandinn í stað þess að takast á við vandamálin. Ég í kjölfarið ritaði nokkur tíst á Twitter, eins og ég á stundum til að gera. Yfirleitt eru tístin mín, tilraun miðaldra hvíts karlmanns til þess að vera fyndinn. Þegar ég er ekki að reyna að vera fyndinn er ég að tísta um fótbolta og einstöku sinnum um pólitík. En þarna á þessu mómenti var ég að opna á gamalt box sem var búið var að vera lokað í dágóðan tíma. Vegna þess að ég skammaðist mín. Mig langaði ekki lengur til að skammast mín. Án þess að fara of djúpt í það (aðallega því ég nenni ekki að endurrita tístin mín) en þá snerist þau um hversu lítinn skilning á fjármálum ég hafði (og hef að vissu leyti enn í dag) og eftir langvarandi atvinnuleysi í kjölfar hrunsins, voru skuldir mínar orðnar allt of miklar til þess að ég gæti höndlað það. Ég taldi mig vita að þessi tíst gætu vakið einhverja athygli. Gott og blessað. Sem og þau gerðu. Fjölmargir aðilar lásu þau, gáfu komment og eða „hjörtuðu” skilaboðin. Sem voru vel að merkja jákvæð, ekki loka augunum fyrir vandamálunum, leitastu frekar eftir aðstoð ef þörf er á. En það sem gerðist daginn eftir var eitthvað sem ég hef sterka skoðun á. Ákveðnir „fjölmiðlar” tóku tístin mín beint upp, orðrétt, án þess að hafa fyrir því að vinna málið af einhverri fagmennsku. Heldur henda þeim upp sem „frétt” á sínum miðlum og það án þess að leitast eftir samþykki frá mér eða ræða það við mig á nokkurn hátt. Það eru vinnubrögð sem mér finnst ekki að fjölmiðill sem vill vera vandur að virðingu sinni, stundar. Alvöru fjölmiðlar og fjölmiðlafólk, leitast eftir heimildum og sinnir sinni vinnu af fagmennsku og alúð. Leggur metnað sinn í að skila sem bestu efni af sér. Ekki svona helvítis fúsk. En því miður ganga þessir „fjölmiðlar” sem þetta stunda, bara þolanlega. Því við almenningur (ég ekki undanskilinn) leyfum þeim að komast upp með það með því að lesa „fréttirnar” sem þeir setja út frá sér. Ég gæti í raun skrifað nokkra kafla um það hvernig mér finnst fjölmiðlar sumir hverjir á íslandi sinna sínum störfum. En ég ætla að láta staðar numið við það…..í bili. Í þessari „frétt“ sem Hringbraut „vann” setja þeir í stríðsfyrirsögn, hluta af frásögn minni á Twitter og það sem skipti minnstu máli í minni frásögn. En það var ekki nóg, því líka tóku þeir ljósmynd, í minni eigu, sem ég birti sem „prófíl” mynd á minni Twitter síðu og skeyta henni saman við fyrirsögnina. Ljósmyndarinn sem tók myndina og seldi mér, hafði samband við mig. Spurði mig hvort að Hringbraut/Fréttablaðið/Torg hefðu fengið leyfi frá mér til þess að birta þessa mynd. Svarið var neitandi. Ljósmyndarinn tjáði mér að alvanalegt væri þá að óska eftir greiðslu fyrir ólöglegra notkun á ljósmynd. Sendi ég því greiðsluseðil á Hringbraut/Fréttablaðið/Torg þar sem kom fram hófleg greiðsla (25.000.kr) fyrir afnot af ljósmynd í minni eigu. Þeirri kröfu minni var umsvifalaust hafnað. Þeim pósti svaraði ég með m.a. eftirfarandi hætti og rökstyð frekar hvers vegna ég telji mig eiga rétt á greiðslu fyrir afnot af ljósmynd í minni eigu: „Í Höfundalögum nr. 73/1972, nánar tiltekið í 49.gr kemur eftirfarandi fram: „Eftirgerð ljósmynda, sem ekki njóta verndar laga þessara sem listaverk, sbr. 2. mgr. 1. gr., er óheimil án samþykkis ljósmyndara eða þess aðilja, sem rétt hans hefur hlotið. [Enn fremur er óheimilt að birta slíkar ljósmyndir án samþykkis rétthafa.] 1) Nú er slík mynd birt opinberlega í atvinnuskyni eða ávinnings, og á ljósmyndari eða síðari rétthafi þá kröfu til þóknunar. Vernd ljósmyndar samkvæmt þessari grein skal haldast, uns liðin eru [50 ár] 1) frá næstu áramótum eftir gerð hennar” Kröfu minni var aftur hafnað. Á þeim forsendum að ég hefði birt ljósmyndina á samfélagsmiðli og því væri fjölmiðlinum heimilt að nota hana. Þegar skýrt er, eins og ég hef skilið hlutina hingað til og samkvæmt þeim upplýsingum sem ég aflaði mér að ljósmyndir sem ég birti, eru í minni eigu og má ekki birta án míns leyfis eða samþykkis. Setti ég því hlutina upp í þetta samhengi við umrætt fjölmiðlafyrirtæki sem notar m.a. umrædda samfélagsmiðla til þess að koma sínu efni á framfæri. ,,Ef ég myndi setja upp vefsíðu. Færi svo á samfélagsmiðla fjölmiðlafyrirtækisins og tæki ljósmyndir sem fyrirtækið á og hefur greitt fyrir og myndi birta þær á minni vefsíðu sem mín eign. Hvað myndi fjölmiðlafyrirtækið gera?“ Svarið sem ég fékk (og þarna var vika liðin frá birtingu ,,fréttarinnar”) var á þann veg að það gæti tekið ,,fréttina” úr birtingu og ég beðinn afsökunar. Ég svaraði því til að ég hefði tekið því tilboði ef það hefði borist strax í byrjun. En þar sem það gerðist ekki og ,,fréttin” í birtingu í vikutíma, sæi ég ekki annað fært en að halda mig við kröfu mína en væri tilbúinn til þess að lækka hana um 10.000.kr sem og ,,fréttin” yrði tekin úr birtingu og ég beðinn afsökunar. Skemmst frá því að segja að fjölmiðlafyrirtækið neitaði að ganga að þessu tilboði mínu og jafnframt tók það fram að þótt það hefði verið tilbúið til að taka ,,fréttina” úr birtingu og biðjast afsökunar að þá væri það ekki merki þess að það viðurkenndi að hafa gengið á minn rétt. Mig langar mikið til að birta hér ljósmynd sem viðkomandi fjölmiðlafyrirtæki birti á sínum samfélagsmiðli……..en ég vill ekki lenda í lögsókn. Höfundur er laganemi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fjölmiðlar Höfundarréttur Matthías Freyr Matthíasson Mest lesið Heilbrigðiskerfi Íslands - Látum verkin tala! Victor Guðmundsson Skoðun Íslendingar – rolluþjóð með framtíð í hampi Sigríður Ævarsdóttir Skoðun Konukot Sigmar Guðmundsson Skoðun Yfirborðskennd tiltekt Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Minni sóun, meiri verðmæti Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks Skoðun Dýrasti staður í heimi Ragnhildur Hólmgeirsdóttir Skoðun Hvers vegna ekki bókun 35? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þögnin sem mótar umræðuna Snorri Ásmundsson Skoðun Skuggaráðherra ríkisstjórnarinnar Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hróplegt óréttlæti í lífeyrismálum Finnbjörn A. Hermansson skrifar Skoðun Tími formanns Afstöðu liðinn Ólafur Ágúst Hraundal skrifar Skoðun Þögnin sem mótar umræðuna Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Minni sóun, meiri verðmæti Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Yfirborðskennd tiltekt Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Konukot Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvers vegna ekki bókun 35? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslendingar – rolluþjóð með framtíð í hampi Sigríður Ævarsdóttir skrifar Skoðun Við hvað erum við hrædd? Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson skrifar Skoðun Höfuðborgin eftir fimmtíu ár, hvað erum við að tala um? Samúel Torfi Pétursson skrifar Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Örugg heilbrigðisþjónusta fyrir öll börn frá upphafi - Alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis 2025 María Heimisdóttir skrifar Skoðun Einn pakki á dag Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands - Látum verkin tala! Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hörmungarnar sem heimurinn hunsar Ragnar Schram skrifar Skoðun Dýrasti staður í heimi Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan grunnstoð ríka samfélagsins Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Milljarðar evra streyma enn til Pútíns Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Speglar geta aðeins logið – um hlutlægni, huglægni og mennskuna Hjalti Hrafn Hafþórsson skrifar Skoðun Að þétta byggð Halldór Eiríksson skrifar Skoðun Þegar viðskiptalíkan Vesturlanda er stríð – og almenningur borgar brúsann Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Slökkvum ekki Ljósið Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Er það ekki sjálfsögð krafa að fá bílastæði? Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Of lítið, of seint! Hjálmtýr Heiðdal,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Halla fer að ræða um frið við einræðisherra Daníel Þröstur Pálsson skrifar Skoðun Ákall til allra velunnara Sólheima í Grímsnesi Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Varðveitum vatnið – hugvekja Hópur starfsfólks Náttúruminjasafns Íslands skrifar Skoðun Innviðaskuld við íslenskuna Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Náttúruvernd er loftslagsaðgerð og loftslagsaðgerðir þjóna náttúrunni Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Sjá meira
Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks Skoðun
Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Örugg heilbrigðisþjónusta fyrir öll börn frá upphafi - Alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis 2025 María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks skrifar
Skoðun Speglar geta aðeins logið – um hlutlægni, huglægni og mennskuna Hjalti Hrafn Hafþórsson skrifar
Skoðun Þegar viðskiptalíkan Vesturlanda er stríð – og almenningur borgar brúsann Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Náttúruvernd er loftslagsaðgerð og loftslagsaðgerðir þjóna náttúrunni Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks Skoðun