Greiða hundruð milljóna vegna illrar meðferðar á námuverkamönnum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. maí 2021 11:45 Náman er þekkt fyrir að hafa gefið af sér lýtalausan bleikan demant sem nú prýðir eina af uppáhaldsnælum Elísabetar Bretadrottningar. Breska námafyrirtækið Petra Diamonds hefur samþykkt að greiða tugum Tansaníumanna jafnvirði 757 milljóna króna í skaðabætur vegna illrar meðferðar.
Náman er þekkt fyrir að hafa gefið af sér lýtalausan bleikan demant sem nú prýðir eina af uppáhaldsnælum Elísabetar Bretadrottningar. Tansaníumennirnir 71 greindu frá því að hafa verið skotnir, barðir, stungnir og haldið föngum. Þá sögðust þeir einnig hafa verið handjárnaðir við sjúkrarúm. Þeir sem beittu ofbeldinu voru öryggisstarfsmenn Williamson Diamonds, dótturfyrirtækis Petra, og lögregla í Shinyanga, sem er eitt af fátækustu héruðum Tansaníu. Í tíu tilvikum var mál sótt af fjölskyldum manna sem höfðu látist við störf í námunni. Forsvarsmenn Petra, sem er skráð í kauphöllina í Lundúnum, segjast hafa skipt um öryggisundirverktaka og lokað fangageymslum á svæðinu, þar sem mannréttindasamtök segja íbúum hafa verið haldið. Þá segjast þeir hafa samþykkt að fjármagna samfélagsleg og heilbrigðistengd verkefni. Guardian greindi frá.
Tansanía Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Sjá meira