Helmingsafsláttur á Ísey Skyr Bar heyrir brátt sögunni til Sylvía Hall skrifar 29. maí 2021 12:38 Margir viðskiptavinir Ísey Skyr Bar hafa nýtt sér hið fræga morguntilboð í nokkur ár. Nú verður breyting á og 50 prósent afsláttur mun víkja fyrir nýjum verðum. Facebook/Vísir Viðskiptavinir Ísey Skyr Bar munu framvegis ekki fá 50 prósenta afslátt af drykkjum, söfum og skálum frá og með 1. júní þegar ný morguntilboð taka gildi. Rekstrarstjóri segir breytingarnar í samræmi við verð sem sambærilegir staðir hafa verið að bjóða upp á og þetta sé hluti af frekari breytingum á stöðunum.
Lengi vel hefur allt á matseðli verið á hálfvirði milli 7:30 og 10 virka daga og 10 og 12 um helgar. Frá og með þriðjudeginum verða föst verð í boði á þeim tímum og munu skálar af matseðli kosta 1.295 krónur og allir drykkir í millistærð 1.095 krónur. Sem dæmi má nefna að skálin 1001 nótt, sem er ein sú vinsælasta sem Ísey býður upp á, kostar 1.795 krónur. Hingað til hefur hún því kostað 898 krónur með morgunafslætti en mun á nýju tilboðsverði kosta 1.295 krónur. Tilboðsverðið á skálinni verður því 44 prósentum hærra. Fyrra tilboð tímabundið Ninna Kristinsdóttir, rekstrarstjóri Ísey Skyr Bar, segir breytinguna til þess fallna að samræma verð við aðra staði sem bjóða upp á sambærilegar vörur. Nýir staðir hafa verið að bjóða upp á morguntilboð á sambærilegu verði og hið nýja á Ísey. „Við erum með 50 prósenta afslátt sem er mikill afsláttur. Við erum eingöngu að breyta morguntilboðinu og samræma okkur við aðra staði og aðra sem eru í svipuðu og eru með sirka 30 prósenta afslátt,“ segir Ninna. „Það er engin framlegð í því fyrir nokkurn stað. Við erum búin að vera með þetta morguntilboð mjög lengi en við höfum verið að láta fólk vita að það sé breyting yfirvofandi.“ Jón Viðar Stefánsson, rekstrarstjóri þjónustustöðva N1, sem festi kaup á rekstri skyrbarsins á þjónustustöðvum sínum í fyrra, segir fyrri afslátt aðeins hafa verið tímabundinn. Nú hafi verið kominn tími á að skipta því út. „Það munu koma önnur og fleiri tilboð í staðinn. Þetta tilboð var tímabundið og nú er það búið.“
Neytendur Veitingastaðir Mest lesið Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Fleiri fréttir Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira