Hvar er seinni sprauta af Astra Zeneca? Jakob Bjarnar skrifar 21. júní 2021 17:29 Björn Ingi á uppýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, embættis landlæknis og sóttvarnarlæknis. Þegar Björn Ing skilur hvorki upp né niður í gangi mála, hver gerir það þá? vísir/vilhelm Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri, einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í Covid-19 og sóttvörnum vegna kórónuveirunnar, veltir fyrir sér hvað dvelji Orminn langa: Seinni sprautuna af Astra Zeneca. „
Maður var ekkert allt of hress með það á sínum tíma að fá boð í bólusetningu með Astra Zeneca vegna margvíslegra frétta utan úr heimi um aukaverkanir, auk þess sem ýmis lönd viðurkenna ekki bóluefnið og langur tími líður milli fyrsta og annars skammts borið saman við önnur efni,“ skrifar Björn Ingi á Facebooksíðu sína. Björn Ingi er þekktur fyrir það að hafa tekið heimsfaraldurinn föstum tökum allt frá því að kórónuveirunnar varð fyrst vart. Hann hefur mætt samviskusamlega á nánast hvern einasta upplýsingafund sóttvarnaryfirvalda til að spyrja gagnrýninna og flytja fréttir á vef sínum Viljanum. Auk þess sem hann hefur sent frá sér bók um efnið þar sem hann ræddi meðal annars við þrenninguna Þórólf Guðnason sóttvarnalækni, Ölmu Möller landlækni og Víði Reynisson hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Þeir síðustu munu verða fyrstir Björn Ingi heldur áfram að viðra áhyggjur sínar, segir Astra Zeneca líklega sísta kostinn sem í boði var. „En maður treysti Þórólfi og hans fólki og fór, enda mikilvægi bólusetningar gríðarlegt til að verjast heimsfaraldri. Skýrt var tekið fram að þeir sem ekki myndu þiggja AZ færu aftast í röðina. Það er þess vegna svolítið fúlt að fæst af þessu hafi gengið eftir.“ Björn Ingi segir reyndina hafa verið þá að þeir sem ekki mættu til að fá sprautu í Aztra Zeneca fóru ekki aftast í neina röð heldur eru þeir fyrir löngu komnir með annað bóluefni og jafnvel fullbólusettir. „En við erum mörg enn að bíða eftir seinni skammtinum og nú var enn verið að fresta honum þar sem AZ skilar ekki umsömdu magni hingað til lands. Og enn á eftir að koma í ljós hvort t.d. Bandaríkjamenn viðurkenna bólusetningu þeirra sem fengu AZ og hleypa þeim inn í landið.“ Flestir aðrir fullbólusettir Pistill Björns Inga vekur nokkrar umræður. Egill Helgason sjónvarpsmaður, sem hefur verið afar áhugasamur um faraldurinn og kynnt sér hann ítarlega segir mikla umræðu um það í Kanada að best sé að blanda saman; „fá Pfizer eða Moderna sem seinni skammt eftir Astra. Kanadamenn hafa dælt út miklu af Astra.“ Óskar Steinar Jónsson, sem starfar hjá ABC barnahjálp, leggur einnig orð í belg og segist sjálfur hafa fengið Astra Zeneca og hafi fengið sömu upplýsingar, að ef hann neitaði væri hann heppinn að fá eitthvað annað seint á árinu. „Núna eru allir hinir í fjölskyldunni löngu full bólusettir en nei enn verið að bíða eftir Astra. Pirrandi.“
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Vísir á vettvangi: Þegar Þórólfur, Steini Aðalsteins, Örn Árna, Heimir Már, ég og allir hinir fórum í bólusetningu Ég var á ritstjórnarfundi að morgni fimmtudags í miðri ræðu um mikilvægi blaðamennskunnar þegar síminn kvartaði undan því að það hafi verið að detta inn SMS. Ég skaut öðru auganu á símann, opnaði skeytið og rak í rogastans. 1. maí 2021 10:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Vísir á vettvangi: Þegar Þórólfur, Steini Aðalsteins, Örn Árna, Heimir Már, ég og allir hinir fórum í bólusetningu Ég var á ritstjórnarfundi að morgni fimmtudags í miðri ræðu um mikilvægi blaðamennskunnar þegar síminn kvartaði undan því að það hafi verið að detta inn SMS. Ég skaut öðru auganu á símann, opnaði skeytið og rak í rogastans. 1. maí 2021 10:00