Vonir dofna vegna Delta-afbrigðisins Samúel Karl Ólason skrifar 21. júlí 2021 13:49 Bandaríkjamenn vilji ólmir eyða peningum sínum um þessar mundir en fyrirtæki eigi erfitt með að auka framleiðslu á nýjan leik. AP/Richard Drew Þær vonir sem fjárfestar víða um heim höfðu varðandi það að lífið væri að færast í eðlilegan farveg, hafa ekki ræst að fullu. Hagkerfi hafa ekki jafnað sig eins hratt og vonast var og óttast er að það geti jafnvel tekið langan tíma vegna útbreiðslu Delta-afbrigðisins.
Þetta kemur meðal annars fram í frétt Reuters þar sem haft er eftir nokkrum fjármálasérfræðingum að þessi hægagangur, verðhækkanir og útbreiðsla Delta-afbrigðis kórónuveirunnar hafi valdið áhyggjum á fjármálamörkuðum. Fréttaveitan vitnar til að mynda í minnisblað George Saravelos, sem er yfir fjármálaráðgjafadeild Deutsche Bank, að dregið hafi úr neyslu samhliða verðhækkunum og það sé öfugt við það sem búast mætti við. Það gefi til kynna að uppsveifla gæti tekið tíma. Sambærileg skilaboð hafa borist frá Bank of America Merill Lynch og eru fjárfestar sagðir hafa flutt peninga sína í var í tiltölulega öruggum fjárfestum eins og ríkisskuldabréf, svo eitthvað sé nefnt. Reuters segir kannanir meðal bandarískra fjárfesta sýna fram á að þeir eru farnir að sýna meiri varkárni í fjárfestingum. Í frétt New York Times segir að hagkerfi Bandaríkjanna eigi í meiri erfiðleikum en búist var við í vor. Bandaríkjamenn virðast þó neysluglaðir. Ríkisstjórn Joes Biden og forsvarsmenn Seðlabanka Bandaríkjanna eru sagðir vilja ná jafnvægi á nýjan leik án óþarflega mikillar verðbólgu. NYT segir þó að til að ná því þurfi að finna lausn á miklu ójafnvægi milli framboðs og eftirspurnar. Bandaríkjamenn vilji ólmir eyða peningum sínum um þessar mundir en fyrirtæki eigi erfitt með að auka framleiðslu á nýjan leik. Það er að hluta til vegna heimslægs skorts á hálfleiðurum.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira