Jón Dagur blóraböggullinn er AGF féll úr keppni Valur Páll Eiríksson skrifar 29. júlí 2021 19:15 Jón Dagur hefur eflaust átt betri daga. Jan Christensen / FrontzoneSport via Getty Images Landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson fékk að líta tvö gul spjöld með átta mínútna millibili er lið hans AGF féll úr keppni í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.
Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði AGF sem mætti Larne frá Norður-Írlandi í Árósum en þeir dönsku höfðu tapað fyrri leik liðanna 2-1. Ekkert annað en sigur dugði AGF því til áframhaldandi keppni í Evrópu en von þeirra veiktist vegna framgangs Jóns Dags í fyrri hálfleik. Hann fékk að líta gult spjald á 18. mínútu leiksins og aðeins átta mínútum síðar fékk hann sitt annað gula og spjald og var þar með vísað af velli. Larne nýtti sér liðsmuninn er Ronan Hale kom liðinu 1-0 yfir, og samanlagt 3-1 í einvíginu, í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok jafnaði Patrick Olsen metin fyrir AGF af vítapunktinum og gef þeim dönsku vonarglætu. Óskar Sverrisson spilaði síðasta korterið fyrir Häcken sem vann 2-0 heimasigur á skoska liðinu Aberdeen. Sá sigur skilaði sænska liðinu hins vegar litlu þar sem það hafði tapað fyrri leiknum í Aberdeen 5-1. Valgeir Lunddal Friðriksson sat allan tímann á bekknum hjá Häcken sem tapaði einvíginu samtals 5-3 og er úr leik. Í næstu umferð mun Aberdeen mæta sigurliðinu úr einvígi Breiðabliks og Austria Wien. Vålerenga vann þá 2-0 sigur á Gent frá Belgíu í Noregi en líkt og hjá Häcken skilaði sigurinn litlu þar sem fyrri leikurinn fór 4-0 fyrir Gent. Viðar Örn Kjartansson er enn frá vegna meiðsla og var ekki í leikmannahópi Vålerenga sem tapaði einvíginu 4-2 og er úr keppni.
Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir Fiorentina - Inter | Albert tekur á móti toppliðinu í síðasta leik fyrir sprautumeðferð 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Sjá meira