Ramsdale genginn í raðir Arsenal Valur Páll Eiríksson skrifar 20. ágúst 2021 18:01 Ramsdale mun veita Bernd Leno samkeppni um markvarðarstöðuna hjá Skyttunum. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Enski markvörðurinn Aaron Ramsdale hefur skrifað undir fjögurra ára samning hjá enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal. Hann kemur til liðsins frá Sheffield United sem féll úr efstu deild í vor.
Ramsdale kostar Arsenal 24 milljónir punda sem getur hækkað í 30 milljónir. Hann var valinn leikmaður tímabilsins hjá Sheffield United í fyrra en gat ekki komið í veg fyrir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni. Hann lék árið áður með Bournemouth og féll einnig það ár. Welcome to The Arsenal, @AaronRamsdale98 — Arsenal (@Arsenal) August 20, 2021 Ramsdale mun veita Þjóðverjanum Bernd Leno samkeppni um markvarðarstöðuna hjá Arsenal en sá síðarnefndi hefur sætt gagnrýni síðustu mánuði. Rúnar Alex Rúnarsson mun eflaust falla aftar í goggunarröðina við skiptin en hann hefur verið orðaður við brottför frá enska liðinu. Ramsdale er annar leikmaðurinn sem Arsenal fær í sínar raðir í dag en Norðmaðurinn Martin Ödegaard kom frá Real Madrid. Arsenal tapaði fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni fyrir Brentford, 2-0, síðasta föstudag en fær Chelsea í heimsókn í Lundúnaslag á sunnudag.
Enski boltinn Mest lesið Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Arnar með met í 100 km: „Sýnist þetta vera níundi hraðasti tíminn í heiminum“ Sport Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Enski boltinn Í beinni: Crystal Palace - Liverpool | Barist um Samfélagsskjöldinn Enski boltinn Tveir látnir eftir sama hnefaleikakvöld í Tókýó Sport Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Fótbolti Umræða um hártog Þróttarakonu í Bestu mörkunum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ólafur skoraði en Aalesund fékk skell Ísak skoraði en Lyngby tapaði Í beinni: Crystal Palace - Liverpool | Barist um Samfélagsskjöldinn Í beinni: Vestri - Fram | Keppst um fjórða sætið Umræða um hártog Þróttarakonu í Bestu mörkunum Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Öll mörk Patricks Pedersen í efstu deild Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool McLagan framlengir við Framara De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Völsungur kom til baka og nældi í stig Björgvin Karl: Settið sem kom að sunnan ekki í Bestu deildar klassa Uppgjör: FHL-FH 0-2 | Þolinmæði vann þraut FH gegn FHL Diljá með stoðsendingu í fyrsta byrjunarliðsleiknum Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Daníel Tristan lagði upp mark en það var ekki nóg gegn toppliðinu Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Segir hetju Evrópumeistaranna ljúga Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Stórstjörnur Barcelona sektaðar fyrir brot á lyfjaprófsreglum Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Segja Sölva hæðast að Bröndby Sjá meira