Höfundur bókanna um Einar Áskel er látinn Atli Ísleifsson skrifar 26. ágúst 2021 07:56 Gunilla Bergström gaf í heildina út 26 bækur um drenginn Einar Áskel, eða Alfons Åberg eins og hann hét á frummálinu. Wikipedia/CC Sænski rithöfundurinn Gunilla Bergström, sem þekktust er fyrir bækurnar um Einar Áskel, er látin 79 ára að aldri.
Útgáfufélag bókanna, Bok-Makaren, staðfestir þetta í samtali við Aftonbladet. „Það er með mikilli sorg sem við tilkynnum að rithöfundurinn og teiknarinn Gunilla Bergström sé látin. Forlagið fékk þau leiðu skilaboð frá fjölskyldunni í gær. Gunilla lést á heimili sínu eftir að hafa glímt við vanheilsu í lengri tíma,“ segir í yfirlýsingunni. Fyrsta bókin um Alfons Åberg, eða Einar Áskel eins og hann hét á íslensku, kom út árið 1972 og hafa bækurnar verið þýddar á um 35 tungumál. Alls hafa komið út 26 bækur um drenginn, sem býr ásamt föður sínum í blokkaríbúð í óræðri sænskri borg. Í bókunum er fylgst með uppvexti og ævintýrum Einars Áskels, en í fyrstu bókunum er fjögurra ára og í leikskóla. Í síðari bókum má svo meðal annars fylgjast með Einari byrja í grunnskóla, en bækurnar voru þó ekki gefnar út í réttri tímaröð þegar kemur að ævi Einars. Auk bókanna hafa verið framleiddir sjónvarpsþættir um Einar Áskel.
Svíþjóð Andlát Bókmenntir Mest lesið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Robert Wilson er látinn Lífið Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira