Páll hættir sem forstjóri Landspítalans Atli Ísleifsson og Eiður Þór Árnason skrifa 5. október 2021 11:27 Páll Matthíasson hefur gegnt stöðu forstjóra Landspítalans í átta ár. Hann tók á sínum tíma við af Birni Zoëga. Vísir/Egill Páll Matthíasson mun hætta sem forstjóri Landspítalans þann 11. október. Hann hyggst snúa aftur til starfa sem geðlæknir og telur tímabært að skipta um leiðtoga eftir átta ár í embætti.
Páll segir í samtali við fréttastofu að um sé að ræða persónulega ákvörðun sem eigi sér ekki rót í ósætti eða óánægju. Ákvörðunin hafi endanlega verið tekin á síðustu dögum en þó hafi það lengi blundað í honum að skipta um starfsvettvang. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs spítalans, tekur tímabundið við stöðu forstjóra til áramóta. „Þetta er jákvæð ákvörðun en ekki neikvæð á neinn hátt. Ég var búinn að vera í átta ár í embætti sem forstjóri og þetta er býsna annasamt starf þannig að ég taldi að það væri tímabært að einhver nýr og kraftmikill aðili komi þar inn,“ segir Páll. Spítalinn á tímamótum Páll bætir við að spítalinn standi nú á ákveðnum tímamótum þegar ný ríkisstjórn tekur við og nýr kafli er að hefjast í uppbyggingu spítalans, til að mynda með nýjum Landspítala og breyttu fjármögnunarmódeli stjórnvalda. „Ég tel bara rétt á þessum tímapunkti að það sé skipt um, óskaði því eftir því að láta af störfum og er mjög sáttur við það,“ segir Páll. Ekkert sérstakt atriði hafi orðið til þess að hann hafi ákveðið að segja skilið við forstjórastólinn. Hann hyggst verða Guðlaugu innan handar næstu mánuði en gerir síðan ráð fyrir að hverfa aftur til starfa sem geðlæknir í geðþjónustu Landspítalans. „Það er full þörf á því og mikill skortur á starfsfólki þar.“ Ekki búinn að fá nóg Óhætt er að segja að mikið hafi mætt á Páli í starfi sínu sem forstjóri og mikið verið rætt um erfiða fjárhagsstöðu spítalans. „Þetta er náttúrulega heilmikið verkefni en ég myndi ekki orða það þannig að ég væri búnn að fá nóg. Ég taldi að núna væri rétti tímapunkturinn og lag þegar mjög farsæll ráðherra sem ég hef unnið vel með er að ljúka störfum.“ Páll bætir við að hann hafi ekki fundið fyrir neinum þrýstingi varðandi starfslok og um sé að ræða hans eigin ákvörðun. „Ég er mjög sáttur og fullur þakklætis í garð þessa frábæra starfsfólks spítalans og samstarfsfólks sem ég á.“ Hefur það tekið mikinn toll að vera í þessu starfi? „Ja, stundum. Þetta er náttúrulega annasamt starf þannig að ég held að ég geti fullyrt að fjölskyldan verður mjög fegin að sjá meira af mér, eða ég vona það allavega.“ Varð við ósk Páls Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hafi orðið við ósk Páls þessa efnis. „Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala, mun að beiðni ráðherra taka við stöðu forstjóra tímabundið til áramóta, þar til skipað hefur verið í embættið að nýju. Páll mun verða nýjum forstjóra innan handar næstu mánuði. Páll hefur gegnt starfi forstjóra Landspítala í átta ár en þar á undan var hann í rúm fjögur ár framkvæmdastjóri geðsviðs spítalans,“ segir í tilkynningunni. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala, mun að beiðni ráðherra taka við stöðu forstjóra tímabundið til áramóta.Landspítalinn Haft er eftir Svandísi að hún þakki Páli fyrir samstarfið: „Landspítali er risavaxinn vinnustaður þar sem fengist er við öll flóknustu verkefnin sem á reynir í heilbrigðisþjónustu við landsmenn. Það er gríðarmikið verkefni að stjórna þessum spítala við venjulegar aðstæður, hvað þá við einhverjar erfiðustu aðstæður sem hugsast getur eins og í heimsfaraldri“ segir ráðherra. Þakklátur Haft er eftir Pál að þakklæti sé sér efst í huga á tímamótunum, gagnvart starfsfólki spítalans og fjölmörgum samstarfsstofnunum. „Spítalinn hefur aldrei verið öflugri en nú með skýra heilbrigðisstefnu og reynsluna af baráttunni við heimsfaraldur í farteskinu. Framundan eru áskoranir á næstu árum, samfara gríðarlegri uppbyggingu sem þarf að haldast í hendur við trygga mönnun. Á þessum tímapunkti tel ég því viðeigandi að nýr forstjóri taki við stjórn spítalans,“ segir Páll. Um Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur segir að hún hafi verið framkvæmdastjóri meðferðarsviðs frá hausti 2019. „Guðlaug Rakel er fædd árið 1961. Hún brautskráðist sem hjúkrunarfræðingur árið 1986 og starfaði sem slíkur í 10 ár. Í kjölfarið sinnti hún ýmsum stjórnunarstörfum, meðal annars í lyfjageiranum, en einnig sem hjúkrunarforstjóri á St. Jósefsspítala og sviðsstjóri hjúkrunar á Landspítala. Guðlaug Rakel hefur lokið MBA-gráðu og bætt við sig þekkingu í lýðheilsuvísindum. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra bráðasviðs við stofnun þess árið 2009 og gegndi síðan starfi framkvæmdastjóra flæðisviðs frá 2014 til 2019,“ segir á vef heilbrigðisráðuneytisins. Fréttin hefur verið uppfærð.
Landspítalinn Heilbrigðismál Vistaskipti Mest lesið Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Erlent Færir nýársboðið fram á þrettándann Innlent Fleiri fréttir Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Sjá meira