KR fékk tvo sóknarmenn Sindri Sverrisson skrifar 19. október 2021 13:45 Sigurður Bjartur Hallsson, Aron Snær Friðriksson og Stefan Alexander Ljubicic eru orðnir leikmenn KR. VÍSIR/VILHELM KR-ingar kynntu á blaðamannafundi í dag til leiks tvo nýja framherja sem verða með liðinu á næstu fótboltaleiktíð.
Leikmennirnir heita Stefan Alexander Ljubicic og Sigurður Bjartur Hallsson. Þeir verða til taks hjá KR þegar liðið leikur í Sambandsdeildinni á næstu leiktíð en KR fékk Evrópusæti úr því að Víkingur varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Stefan skoraði 9 mörk í 24 leikjum fyrir HK á síðustu leiktíð, þar af 6 mörk í 21 leik í Pepsi Max-deildinni. HK féll hins vegar niður um deild í lokaumferðinni. Stefan hefur einnig leikið með Grindavík og Keflavík í efstu deild en þessi 22 ára, hávaxni og líkamlega sterki framherji, var á mála hjá Brighton í Englandi á táningsárum eða þar til hann kom til Grindavíkur sumarið 2019. Sigurður Bjartur er einnig 22 ára gamall. Hann er uppalinn Grindvíkingur og blómstraði í sumar þegar hann skoraði 17 mörk í 21 leik í Lengjudeildinni og varð næstmarkahæstur í deildinni. Þá skoraði hann tvö mörk í Mjólkurbikarnum. Sumarið 2020 skoraði hann átta mörk í 19 leikjum í Lengjudeildinni. Áður höfðu KR-ingar tilkynnt um komu markvarðarins Arons Snæs Friðrikssonar sem kom til félagsins frá Fylki.
Pepsi Max-deild karla KR UMF Grindavík HK Mest lesið Staðfestir brottför frá Liverpool Enski boltinn Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Golf Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Fótbolti „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Körfubolti „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Körfubolti Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Formúla 1 Kane fékk loksins að syngja sigurlagið Fótbolti Heimamaður setti met í fjölmennasta utanvegahlaupi Íslands Sport Sendu Houston enn á ný í háttinn Körfubolti Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð Formúla 1 Fleiri fréttir Sjáðu Flóka færa Val fyrsta tapið, ÍA í stuði og hvernig Vestri fór á toppinn Þorleifur snýr heim í Breiðablik Uppgjör: FH - Valur 3-0| FH skellti Valsmönnum Nik sendi Ástu skeyti: „Mikil eftirvænting fyrir þessari frumraun“ Uppgjörið: ÍA - KA 3-0 | Skagamenn risu upp og Viktor fann markaskóna Uppgjörið: ÍBV - Vestri 0-2 | Vestramenn aftur á toppinn Sjáðu markaveislu Breiðabliks og FH og mörkin úr sögulegum sigri Fram „Við gátum ekki farið mikið neðar“ Uppgjörið: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjarnan fyrst til að skora gegn Val FH-ingar kláruðu Akureyringa á korteri og jöfnuðu Blika á toppnum Leik lokið: Þróttur - Tindastóll 1-0 | Eina markið skorað úr fyrstu sókn leiksins Uppgjörið: Fram - FHL 2-0 | Fram nældi í sín fyrstu stig í nýliðaslagnum við FHL Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-0 | Meistararnir með markaveislu í sólinni „Þetta var ákvörðun sem ég þurfti að taka“ „Finnst þessir fyrstu tveir leikir hræðilegir“ Draumaendir Bjarka á ferlinum: „Loksins fann ég þjálfara sem virkilega skildi mig“ „Fannst ekkert gerast nema Fanndís væri að gera eitthvað“ „Hvað eru menn búnir að láta fífla sig út í?“ Vilja að Arna elti stóru systur: „Þær eru svakalegir íþróttamenn“ Sjáðu sjálfsmarkið sem skipti sköpum og fyrstu mörk Lífar Fylki og Keflavík spáð sigri í Lengjudeildunum Stokke í raðir Aftureldingar Bikarvörnin hefst gegn Fram „Held að Víkingar hafi keypt rangan framherja úr HK“ Bjarki um gjaldþrotið: „Þú ert niðurlægður á ákveðinn hátt“ Stúkan um Stjörnuna: „Er algjört kjaftæði“ Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni „Fannst við halda góðri stjórn á leiknum“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 7-1 | Upprúllun í Kópavogi Sjá meira