Annar metdagur: 178 greindust með kórónuveiruna innanlands Atli Ísleifsson skrifar 10. nóvember 2021 11:12 Mikill fjöldi hefur greinst með kórónuveiruna hér á landi síðustu daga. Vísir/Vilhelm 178 manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei hafa svo margir greinst með veiruna á sama degi hér á landi frá upphafi faraldursins. 96 af þeim 178 sem greindust innanlands í gær voru ekki í sóttkví við greiningu, eða 54 prósent. 82 voru í sóttkví við greiningu, eða 46 prósent.
Þetta kemur fram á síðunni covid.is. 168 greindust innanlands á mánudaginn og höfðu þá aldrei fleiri greinst með veiruna hér innanlands á sama degi. Á síðunni kemur fram að 1.353 séu nú í einangrun vegna Covid-19, en voru 1.260 í gær. 1.230 eru nú í sóttkví, en voru 2.216 í gær. 223 eru nú í skimunarsóttkví. Á vef Landspítalans í morgun kom fram að fimmtán liggi nú inni á Landspítala með Covid-19. Þrír séu á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Af þeim fimmtán sem liggja inni eru fimm óbólusettir en meðalaldur inniliggjandi er 59 ár. Fimmtán smit kom upp á landamærunum í gær – sjö virk smit í fyrri landamæraskimun og þá er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilviki átta. Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 418,9, en var 392,3 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 23,7, en var 21,8 í gær. Alls hafa 14.935 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 34 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins. Alls voru tekin 2.427 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 1.329 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 1.068 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun. Fréttin hefur verið uppfærð. Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var haft eftir Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni að smitin hafi verið um 180 í gær en að enn ætti eftir að taka saman endanlegar tölur um fjölda smitaðra.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Fimmtán liggja inni og þrír eru í öndunarvél Fimmtán liggja nú inni á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Af þeim fimmtán sem liggja inni eru fimm óbólusettir en meðalaldur inniliggjandi er 59 ár. 10. nóvember 2021 10:09 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira
Fimmtán liggja inni og þrír eru í öndunarvél Fimmtán liggja nú inni á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Af þeim fimmtán sem liggja inni eru fimm óbólusettir en meðalaldur inniliggjandi er 59 ár. 10. nóvember 2021 10:09