Man. Utd fékk leik sínum frestað og smitin aldrei fleiri í deildinni Sindri Sverrisson skrifar 14. desember 2021 07:06 United fagnaði 1-0 sigri gegn Norwich á laugardaginn og enginn greindist með Covid-19 fyrir þann leik. Einhverjir leikmenn greindust hins vegar með smit daginn eftir. Getty/Alex Pantling Manchester United fékk það í gegn að leik liðsins við Brentford, sem fara átti fram í kvöld, yrði frestað vegna hópsmits hjá félaginu.
Ekki hefur komið fram hve margir hjá United hafa smitast af kórónuveirunni né þá hve margir hinna smituðu séu leikmenn liðsins. Félagið lokaði Carrington-æfingasvæðinu í gær vegna smithættu. Dagana 6.-12. desember greindust 42 smit í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, hjá leikmönnum og starfsliði félaganna tuttugu. Ekki hafa greinst fleiri smit á einni viku í deildinni síðan að byrjað var að taka sýni með reglulegum hætti í maí árið 2020. Smit hafa greinst hjá Brighton, Tottenham, Leicester, Aston Villa og Norwich, og var leik Brighton og Tottenham sem fara átti fram síðasta sunnudag frestað vegna hópsmits hjá Tottenham. Allir leikmenn United greindust neikvæðir fyrir 1-0 sigur liðsins gegn Norwich á laugardaginn en einhverjir greindust með jákvæð sýni fyrir æfingu daginn eftir. „Í ljósi þess að hætt var við æfingu og vegna þeirrar truflunar sem orðið hefur varðandi leikmannahópinn, og með heilsu leikmanna og starfsliðs í forgangi, fór félagið fram á að leiknum yrði frestað,“ sagði í yfirlýsingu United seint í gærkvöld. Í yfirlýsingu Brentford voru stuðningsmenn beðnir afsökunar á frestuninni en tekið fram að félagið virti ákvörðun ensku úrvalsdeildarinnar og að heilsa og öryggi leikmanna og starfsliðs yrði að vera í forgangi.
Enski boltinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira