Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Sindri Sverrisson skrifar 3. september 2026 22:15 Mike Dean er greinilega spéfugl en spurningin er hvernig það samræmist dómarastörfum. Getty/Robin Jones Enski fótboltadómarinn Mike Dean fór sínar eigin leiðir þegar hann dæmdi í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og lék sér til að mynda að því að prófa hve lengi hann gæti haldið sig í miðjuhringnum á meðan að leikur væri í fullum gangi.
Dean sagði frá þessu í hlaðvarpsþætti Jamie Vardy og einnig að hann hefði leikið sér að því að sleppa því að flauta í dómaraflautuna eins lengi og mögulegt væri. „Við sögðum „Jæja, nú byrjum við. Sjáum hve lengi við náum án þess að flauta.“ Ég gerði þetta nokkrum sinnum í ensku úrvalsdeildinni, auðvitað áður en VAR kom – náði 20, 25 mínútum án þess að flauta í flautuna. Ég gerði líka fleira. Ég átti það til að standa í miðjuhringnum og sjá hve lengi ég gæti staðið þar. Þetta var bara ég að grínast. Ég náði einu sinni 15 mínútum,“ sagði Dean. 🚨Mike Dean admits he used to play secret mini-games on the pitch while officiating top-flight matches.Mike Dean🗣️“We used to say, ‘Right, we'll kick off now, right? See how long we can go without blowing a whistle.’ Done that a few times in the Premier, before VAR obviously.…— The 44 ⚽️ (@The_Forty_Four) September 3, 2026 Óhætt er að segja að þessi ummæli Dean falli illa í kramið hjá mörgum, ekki síst fyrrverandi kollegum hans úr dómarastéttinni. Mark Halsey, sem dæmdi á árunum 1999 til 2013 í ensku úrvalsdeildinni, segir við BBC að ummæli Dean skaði orðspor allra dómara. Dean fékk að dæma fjölda stórleikja á sínum ferli og nú sé hægt að efast um heilindi hans í öllum leikjum. „Þetta hefur valdið svo miklum deilum og á öllum mínum árum sem atvinnudómari hef ég aldrei heyrt um þessa leiki, aldrei,“ sagði Halsey. „Ef Mike hefur tekið þátt í þessum leikjum, þá hefur hann gert það að eigin frumkvæði. Og ef hann hefur gert það, þá held ég að við þurfum að vita í hvaða leikjum hann gerði það og í hversu mörgum leikjum. Þetta dregur heiðarleika allra dómara í efa núna.“ 🗣️ "All my years as a professional referee, I have to say I've never heard of these games."Retired referee Mark Halsey says he is astounded that Mike Dean used to set himself mini-challenges during matches 😬 pic.twitter.com/I3whgpaNsE— Match of the Day (@BBCMOTD) September 3, 2026 Dean var dómari í 28 ár en hætti að starfa sem aðaldómari árið 2022 og ári hætti hann alveg dómgæslu, eftir að hafa starfað eina leiktíð sem myndbandsdómari. Sem slíkur kom hann sér í fréttirnar í ágúst 2022 fyrir að senda ekki dómarann að skoða hártog Cristian Romero á skjá, í leik Tottenham og Chelsea. Seinna sagðist hann hafa sleppt því af vinskap við dómarann, Anthony Taylor.
Enski boltinn Tengdar fréttir Mike Dean hættir alfarið eftir 28 ára feril Enski knattspyrnudómarinn Mike Dean hefur ákveðið að hætta alfarið í dómgæslu eftir 28 ára langan feril. 15. júlí 2023 20:45 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira
Mike Dean hættir alfarið eftir 28 ára feril Enski knattspyrnudómarinn Mike Dean hefur ákveðið að hætta alfarið í dómgæslu eftir 28 ára langan feril. 15. júlí 2023 20:45