Inter endurheimti toppsætið með sigri Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. janúar 2022 21:42 Milan Skriniar skoraði sigurmark Inter í kvöld. Marco Rosi - SS Lazio/Getty Images Inter Milan endurheimti toppsæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri gegn Lazio í kvöld. Lautaro Martinez hélt að hann hefði komið heimamönnum í Inter yfir á 17. mínútu, en eftir skoðun myndbandsdómara var markið dæmt af vegna rangstöðu. Heimamenn komust þó í 1-0 með marki frá Alessandro Bastoni eftir hálftíma leik, en Ciro Immobile jafnaði metin fyrir gestina fimm mínútum síðar. Stapan var því 1-1 þegar flautað var til hálfleiks, en Milan Skriniar kom heimamönnum yfir á nýjan leik á 67. mínútu þegar hann skallaði fyrirgjöf Alessandro Bastoni í netið. Þetta reyndist seinasta mark leiksins og niðurstaðan varð því 2-1 sigur Inter. Sigurinn lyfti meisturunum aftur upp fyrir nágranna sína í AC Milan í efsta sæti deildarinnar. Liðið er nú með 49 stig, einu stigi meira en AC Milan sem hefur leikið einum leik meira. Lazio situr hins vegar í áttunda sæti deildarinnar með 32 stig, líkt og Roma og Fiorentina sem sitja í sjötta og sjöunda sæti. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn