Tæplega 3500 börn á aldrinum 5-11 ára greinst en ekkert lagst inn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. janúar 2022 15:35 Frá bólusetningu barna sem farið hefur fram um allt land á nýju ári. Á höfuðborgarsvæðinu er bólusett í Laugardalshöll. Vísir/Vilhelm Hér á landi hafa 6.578 börn á aldrinum 0–16 ára greinst með COVID-19 frá upphafi faraldursins til 2. janúar 2022, þar af eru 3.449 börn á aldrinum 5–11 ára.
Þetta kemur fram í svari Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um Covid-19 smit barna hér á landi. Sex börn á aldrinum 0–16 ára hafa verið lögð inn á sjúkrahús hér á landi vegna COVID-19 frá upphafi faraldursins til 2. janúar 2022. Ekkert barn á aldrinum 5–11 ára hefur hins vegar verið lagt inn á sjúkrahús. Frá upphafi faraldursins til 2. janúar 2022 hafa tvö börn á aldrinum 0–16 ára þurft á gjörgæslustuðningi að halda vegna smitsins en ekkert barn á aldrinum 5–11 ára. Alls hafa 17 börn á aldrinum 0–16 ára fengið rauða merkingu í eftirliti COVID-göngudeildar, sem þýðir mjög alvarleg veikindi sem þarfnast athugunar læknis, þar af fjögur sem voru á aldrinum 5–11 ára. Á sama tíma hafa 308 börn á aldrinum 0–16 ára fengið gula merkingu í eftirliti COVID-göngudeildar sem þýðir versnandi veikindi, þar af 143 sem voru á aldrinum 5–11 ára. Við þetta má bæta að frá og með deginum í dag verða munnstrokur látnar duga í PCR-prófum hjá börnum fædd árið 2013 og síðar. Er þetta gert til að bæta upplifun barna og vegna mikils álags en upp í fimm sinnum lengri tíma tekur að taka PCR-sýni af börnum.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Mest lesið Slys á Miklubraut: Bíll hafnaði á vegriði Innlent Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Innlent Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Fleiri fréttir Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Bíll hafnaði á vegriði „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Sjá meira