Portúgalski flugherinn til Íslands til að sinna loftrýmisgæslu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. janúar 2022 12:11 Portúgalski flugherinn mun koma hingað til Íslands í vikunni til að sinna loftrýmisgæslu. Landhelgisgæslan/Portúgalski flugherinn Flugsveit portúgalska hersins mun koma hingað til lands í vikunni til þess að hefja loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin mun koma hingað til lands með fjórar orrustuþotur og um 85 liðsmenn.
Þetta er í annað sinn sem Portúgalar taka þátt í verkefninu hér á landi en síðast annaðist portúgalski flugherinn loftrýmisgæslu á Íslandi fyrir tíu árum síðan. Liðsmenn flughersins munu hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli á meðan þeir eru hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Þar kemur fram að gert sé ráð fyrir að portúgalska flugsveitin geri aðflugsæfingar að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum dagana 31. janúar til 7. febrúar en æfingarnar muni taka mið af veðri. Portúgalski herinn muni taka þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Framkvæmd verkefnisins muni fara fram með sama hætti og áður og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Eins og með annan erlendan liðsafla sem dvelji tímabundið hér á landi sé í gildi viðbúnaður vegna sóttvarna meðan á dvöl portúgölsku flugsveitarinnar stendur og er framkvæmdin unnin í samvinnu við embætti landlæknis og aðra sem kom að sóttvörnum hér á landi. Landhelgisgæslan annast framkvæmd verkefnisins hér á landi og er gert ráð fyrir að loftrýmisgæslunni ljúki í lok mars.
Landhelgisgæslan Portúgal NATO Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira