Ótrúleg endurkoma tryggði Kamerún bronsið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. febrúar 2022 21:18 Kamerún tryggði sér þriðja sæti Afríkumótsins í fótbolta með ótrúlegri endurkomu í kvöld. Visionhaus/Getty Images Kamerún tryggði sér þriðja sæti Afríkumótsins í fótbolta með sigri gegn Búrkína Fasó í vítaspyrnukeppni í kvöld. Kamerún lenti 3-0 undir snemma í síðari hálfleik, en snéru leiknum við á lokamínútunum.
Steeve Yago skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Búrkína Fasó á 24. mínútu eftir stoðsendingu frá Issa Kabore. Gestirnir fóru svo með 2-0 forystu inn í hálfleikinn eftir að Andre Onana varð fyrir því óláni að setja boltann í sitt eigið net á 43. mínútu leiksins. Djibril Ouattara breytti stöðunni í 3-0 snemma í síðari hálfleik eftir undirbúning Bertrand Traore og brekkan því orðin ansi brött fyrir heimamenn. Stephane Bahoken klóraði í bakkann fyrir heimamenn þegar tæpar tuttugu mínútur voru til leiksloka og Vincent Aboubakar minnkaði muninn í 3-2 þegar um fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Aboubakar var svo aftur á ferðinni þegar hann jafnaði metin fyrir heimamenn á 88. mínútu og því var farið beint í vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara. Bæði lið skoruðu úr fyrstu tveimur spyrnum sínum, en Ibrahim Blati Toure klikkaði á þriðju spyrnu Búrkína Fasó á meðan Karl Toko Ekambi skoraði úr sinni spyrnu fyrir Kamerún. Bæði lið skoruðu úr sinni fjórðu spyrnu áður en Ambroise Oyongo Bitolo skoraði úr fimmtu spyrnu Kamerún og tryggði liðinu þar með þriðja sæti mótsins.
Afríkukeppnin í fótbolta Kamerún Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Fleiri fréttir Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Sjá meira