Leiknir fær kantmann sem lék fyrir pólska landsliðið Sindri Sverrisson skrifar 9. febrúar 2022 15:45 Maciej Makuszewski lék þrjá leiki fyrir Pólland í undankeppni HM 2018 en var ekki í lokahópnum sem fór á sjálft mótið í Rússlandi. Getty/Andrew Surma Leiknir hefur samið við pólska kantmanninn Maciej Makuszewski sem leikið hefur fimm A-landsleiki fyrir pólska landsliðið í fótbolta. Makuszewski er 32 ára gamall og var í 35 manna úrtakshópi Pólverja fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi árið 2018, þó að ekki hafi hann endað í lokahópnum með Robert Lewandowski og félögum. Makuszewski lék síðast fyrir Jagiellonia Białystok í heimalandinu en árin 2016-2020 var hann hjá hinu öfluga liði Lech Poznan. Leiknismenn eru stórhuga eftir að hafa í fyrsta sinn í sögunni tekist að halda sæti sínu í efstu deild, á síðustu leiktíð, þegar þeir enduðu í 8. sæti. Leiknismenn hafa sótt sér liðsstyrk í vetur og fengu á dögunum danska sóknarmanninn Mikkel Dahl frá HB í Þórshöfn en hann setti markamet í efstu deild Færeyja í fyrra þar sem hann skoraði 27 mörk í 25 deildarleikjum. Annar danskur leikmaður, Mikkel Jakobsen, kom frá NSÍ Runavík í Færeyjum en hann er 22 ára vinstri kantmaður og miðjumaður. Þeir Jakobsen og Dahl gerðu báðir samning til tveggja ára við Leikni. Miðvörðurinn Óttar Bjarni Guðmundsson og miðjumaðurinn Sindri Björnsson sneru einnig aftur heim í Breiðholtið, auk þess sem Leiknir sótti sér Róbert Hauksson, tvítugan sóknarmann frá Þrótti Reykjavík.
Makuszewski er 32 ára gamall og var í 35 manna úrtakshópi Pólverja fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi árið 2018, þó að ekki hafi hann endað í lokahópnum með Robert Lewandowski og félögum. Makuszewski lék síðast fyrir Jagiellonia Białystok í heimalandinu en árin 2016-2020 var hann hjá hinu öfluga liði Lech Poznan. Leiknismenn eru stórhuga eftir að hafa í fyrsta sinn í sögunni tekist að halda sæti sínu í efstu deild, á síðustu leiktíð, þegar þeir enduðu í 8. sæti. Leiknismenn hafa sótt sér liðsstyrk í vetur og fengu á dögunum danska sóknarmanninn Mikkel Dahl frá HB í Þórshöfn en hann setti markamet í efstu deild Færeyja í fyrra þar sem hann skoraði 27 mörk í 25 deildarleikjum. Annar danskur leikmaður, Mikkel Jakobsen, kom frá NSÍ Runavík í Færeyjum en hann er 22 ára vinstri kantmaður og miðjumaður. Þeir Jakobsen og Dahl gerðu báðir samning til tveggja ára við Leikni. Miðvörðurinn Óttar Bjarni Guðmundsson og miðjumaðurinn Sindri Björnsson sneru einnig aftur heim í Breiðholtið, auk þess sem Leiknir sótti sér Róbert Hauksson, tvítugan sóknarmann frá Þrótti Reykjavík. Pepsi Max deildir karla og kvenna eru á Stöð 2 Sport. Deildirnar eru hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Pepsi Max deildir karla og kvenna eru á Stöð 2 Sport. Deildirnar eru hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Pepsi Max-deild karla Leiknir Reykjavík Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Enski boltinn Fleiri fréttir 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Sjá meira