Afar blendnar tilfinningar netverja með niðurstöðuna Viktor Örn Ásgeirsson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 12. mars 2022 23:09 Óalgengt er að allir séu á eitt sáttir með framlag Íslands til Eurovision. Vísir/Hulda Margrét Óhætt er að segja að spennan hafi verið rafmögnuð þegar úrslitin í Söngvakeppninni voru kynnt í kvöld. Eins og gengur voru margir ánægðir en aðrir í áfalli yfir niðurstöðunni.
Það voru þær Sigga, Beta og Elín sem sigruðu í Söngvakeppni sjónvarpsins með laginu Með hækkandi sól. Þær systur höfðu betur eftir einvígi við Reykjavíkurdætur en þær síðarnefndu þóttu sigurstranglegastar að mati veðbanka. Hluti þjóðarinnar tjáði sig um úrslitin undir myllumerkinu #12stig og sýndist sitt hverjum. Voru margir í áfalli með að Reykjavíkurdætur hefðu ekki staðið uppi sem sigurvegarar. Elísabet Ósk rifjaði upp talningaóreiðuna í Alþingiskosningunum í haust. Voru stigin talin í Borgarnesi ? 🙄 #12stig— Elísabet Ósk (@elisabetosk19) March 12, 2022 Þorgerður María gerði grín að því að líklega væri betur haldið utan um símaneyslu barnanna nú en í fyrri Söngvakeppnum. Greinilegt að það er komin betri barnalæsing á símana hjá fólki #12stig— sTuðgerður Maria (@thmaria220) March 12, 2022 Ásgerður Ásgeirs er eitt stórt spurningarmerki. Hvernig unnu Reykjavíkurdætur ekki?!? #12stig— Ásgerður Ásgeirs (@asgerdurasgeirs) March 12, 2022 Bjarki Birgis er sár. Mér líður eins og íslenska þjóðin hafi brugðist mér #12stig #daughtersofreykjavik— Bjarki birgisson (@Bjarkibirgisso7) March 12, 2022 Söngkonan Hildur var dyggur stuðningsmaður Reykjavíkurdætra. Hún telur fyrirkomulagið ekki gott. Sko 2 lög í úrslit og 50% dómnefndarvægi er núna að sýna enn og aftur að vinsælasta lagið fer ekki endilega áfram. Ég er miður mín 🥺 #12stig— Hildur (@hihildur) March 12, 2022 Svava Kristín íþróttafréttakona rýnir í söguna. Muniði þegar við sendum Mariu Ólafs í stað Frikka Dórs? Já það var að gerast aftur. Tímabært að taka út úrslitaeinvígið í Eurovision 🤦🏻♀️🤦🏻♀️#12stig— Svava Gretarsdóttir (@SvavaGretars) March 12, 2022 Unnur Borgþórs er á sömu skoðun. Jæja í þetta skiptið er ég komin aftur á forritið til að segja að við erum heimskasta þjóð í heimi SJITT hvað ég er brjáluð skammist ykka. Rvkdtr og Friðrik Dór þið eruð best í heimi aldrei gleyma því 💔 #12stig— Unnur Borgþórsdóttir (@unnurborgthors) March 12, 2022 Edda Falak hlaðvarpsstjórnandi er búin að missa trúna á Eurovision. jæja þá er ég búin að cancella Eurovision. #12stig— Edda Falak (@eddafalak) March 12, 2022 Hún rifjar upp einræðu Jóns Gnarr úr Næturvaktinni. pic.twitter.com/CroLTAHkxf— Edda Falak (@eddafalak) September 26, 2021 Sumir Twitter-notendur telja feðraveldinu um að kenna. Feðraveldið olli þessu #12stig— alexis eyja (@eyjathr) March 12, 2022 Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kynjafræðingur er á svipuðu máli. Þetta tap Reykjavíkurdætra hefur ekkert að gera með feminisma - er það? #12stig— Hanna Björg (@HannaBVilhj) March 12, 2022 Salka Sól, fyrrverandi Reykjavíkurdóttir, er svekkt fyrir hönd vinkvenna sinna. Hvernig getur 6 manna dómnefnd haft jafn mikið vægi og öll þau sem kusu? Ég er handviss um að @RVKDTR unnu símakosningu. #12stig— Salka Sól Eyfeld (@salkadelasol) March 12, 2022 Fjöldi fólks elskaði Ey-systurnar og blöskrar ummæli fólks á Twitter. Guðrún Ásta Fylling skilur ekkert í viðbrögðum marga. Er ekki hægt að samgleðjast Ey-systrunum í stað þess að rakka þær niður því ykkar uppáhalds lag komst ekki áfram? Var ekki girl power? #12stig— Guðrún Ásta Fylling (@gudrunasta) March 12, 2022 Borgnesingurinn Heiðar Lind Hansson kann að meta Með hækkandi sól. Heyrði sigurlagið í fyrsta sinn í kvöld. Kaus það nokkrum sinnum. Frábært lag! #12stig— Heiðar Lind Hansson (@heidarlind) March 12, 2022 Bragi Valdimar textahöfundur hrósar lagahöfundinum Lay Low. Ókei. Vissulega óvænt úrslit. Það gerist. En svona fyrst enginn annar ætlar að minnast á það: Mikið svakalega er hún Lay Low góður lagahöfundur. #12stig— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) March 12, 2022 Matthías Magnússon á Rás 2 bendir á tilurð texta Lay Low. Smá um texta Lay Low við lagið Með hækkandi sól. #12stig pic.twitter.com/lqM7xRJZxb— Matti (@mattimar) March 12, 2022 Ylfa Lind skilur hvorki upp né niður. Afhverju eru allir að láta eins og það hafi ekki verið magnaðar tónlistarkonur að vinna söngvakeppnina? #12stig— Ylfa Lind Gylfadóttir (@YlfaLind) March 12, 2022 Elin Henriks er ánægð með tróíð. Ánægð með úrslitin, áberandi bestu flytjendurnir #12stig pic.twitter.com/FmL04Nfl1L— Elin Henriks (@elinh14) March 12, 2022 Jafet Sigfinsson segir systurnar með allt upp á tíu. Ég veit Twitter var team RVKDTR (ég var það líka) en vá Sigga, Beta & Elín. Þvílíkt class act. Þetta var svo ótrúlega fallegur flutningur, harmoníurnar alveg upp á tíu og allt bara óaðfinnanlegt. Þær eru langt því frá að vera undeserving sigurvegarar. #12stig— Jafet ⚡️ Sigfinnsson (@jafetsigfinns) March 12, 2022 Elín Guðmundsdóttir segir lagið einfaldlega bara hafa verið betra. Ég skil ekki alveg þessa umræðu um að úrslitin í kvöld hafi verið and-feminísk. 3/4 sviðsfólks voru konur, texta og lagahöfundur kona og frábært lag! Reykjavíkurdætur voru með mjög gott lag og besta boðskapinn, en lagið hennar LayLow var bara betra 🤷♀️ #12stig— Elín Pelin Michelin Zeppelin (@elingudm) March 12, 2022 Dr. Auður Magndís sættir sig alveg við niðurstöðuna. Þrjár konur (dætur ástsælustu söngkonu landsins) með mjög gott lag eftir konu eru að fara út fyrir okkar hönd. Þar af tvær hinsegin. (Ekki beint feðraveldið uppmálað sko.)Femínistinn í mér getur alveg sætt sig vel við þetta sko. #12stig— Dr. Auður Magndís (@amagndis) March 12, 2022
Eurovision Samfélagsmiðlar Ríkisútvarpið Tengdar fréttir Úrslitin í Söngvakeppninni: Með hækkandi sól framlag Íslands í Tórínó Sigga, Beta og Elín sigruðu í Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr í kvöld með laginu Með hækkandi sól. Þær systur unnu einvígi við Reykjavíkurdætur en þær síðarnefndu þóttu sigurstranglegastar að mati veðbanka. 12. mars 2022 22:15 Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Fleiri fréttir Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Sjá meira
Úrslitin í Söngvakeppninni: Með hækkandi sól framlag Íslands í Tórínó Sigga, Beta og Elín sigruðu í Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr í kvöld með laginu Með hækkandi sól. Þær systur unnu einvígi við Reykjavíkurdætur en þær síðarnefndu þóttu sigurstranglegastar að mati veðbanka. 12. mars 2022 22:15